Þúsundir sóttu bílasýningu Kvartmíluklúbbsins

Lestími: 2 mín

Stór bílasýning á vegum Kvartmíluklúbbsins var haldin um liðna í helgi í Haukahúsinu í Hafnarfirði. Tilefnið var 50 ára afmæli klúbbsins í sumar.  Yfir 200 tryllitæki á tveimur eða fjórum hjólum voru til sýnis og lögðu fjölmargir leið sína á sýninguna sem heppnaðist í alla staði mjög vel.

Á sýningunni voru sýndar ýmsar gerðir keppnisbíla og hjóla. Að sögn Ingólfs Arnarsonar, formanns Kvartmíluklúbbs Íslands eru allir í skýjunum með sýninguna. Um 10 þúsund manns eru talin hafa sótt sýninguna um helgina.

Þéttur straumur af fólki allan helgina

,,Þarna var frábært safn að bílum, bæði nýjum og gömlum. Það má segja að þarna hafi komið saman öll flóran. Á sýningunni voru yfir 230 bílar og auk þess fullt af mótorhjólum.  Þarna var komið saman fjöldinn allur af mjög fallegum og athyglisverðum bílum. Sýningin var vel sótt og það var þéttur straumur af fólki allan helgina sem var mjög ánægjulegt. Það er ótrúlegur bílaáhugi í landinu sem kom bersýnilega í ljós um helgina,“ sagði Ingólfur Arnasrson í samtali við fíbfréttir.

Ingólfur hefur sjálfur verið mikill bílaáhugamaður alla tíð en hann hefur verið í Kvartmíluklúbbnum síðan 1981, auk þess að keppa í akstursíþróttum. Félagsmenn í klúbbnum eru um 500 talsins og eru dagskráin þétt setin frá miðjum maí fram í september á kvartmílubrautinni í Kaphelluhrauni í Hafnarfirði.

Við erum að efla starfið enn frekar

,,Starfsemin er mikil í kringum klúbbinn, flest kvöld vikunnar og svo er keppt um helgar. Jú, þetta sport er fyrir alla. Erlendis er þetta til dæmis mikið fjölskyldusport. Við í Kvartmíluklúbbnum erum að taka inn hjá okkur nokkra krakkabíla, Junior- dragstera og þau geta byrjað 12 ára að keppa. Við erum að efla starfið enn frekar og viljum fá inn nýliðun og gera þetta meira fjölskyldutengt.“

,,Starfsemin gengur vel og við horfum björtum augum til næstu ára og framtíðarinnar. Við ætlum okkur enn frekar að byggja upp unglingastarfið, þar eru mörg tækifæri,“ sagði Ingólfur Arnarson.

Deila grein: