Bílamarkaðurinn í Evrópu árið 2025 einkenndist af varfærnum vexti og mikilli innreið rafbíla, á meðan árið 2026 stefnir í að vera ár tæknilegra áskorana og hertra umhverfiskrafna. Árið 2025 var SAMT þriðja árið í röð þar sem sala nýrra bíla jókst í Evrópu, þótt hún sé enn talsvert undir þeim tölum sem sáust fyrir heimsfaraldur.Heildarsala var um 13,3 milljónir í Evrópu sem er um 2,4% aukning frá 202.
Salan á rafbílum rauk upp um tæp 30% og náðu rafbílar um 17,4% hlutdeild á markaðnum. Þýskaland náði vopnum sínum á ný sem stærsti rafbílamarkaðurinn eftir dýfu árið áður. Volkswagen var áfram stærsti framleiðandinn með um 27% markaðshlutdeild.
Dacia Sandero var mest seldi bíllinn í Evrópu
Dacia Sandero var mest seldi bíllinn í Evrópu annað árið í röð. Kínverski bílaframleiðandinn BYD jók sölu sína gríðarlega á meðan Tesla átti erfitt uppdráttar og dróst saman um 26%. Hér á landi tók bílasala mikinn kipp undir lok ársins vegna breytinga á vörugjöldum.
Á þessu ári er spáð áframhaldandi en hægum vexti
Á þessu ári er spáð áframhaldandi en hægum vexti í Evrópu almennt. Samt ríkir póltísk óvissa og nýjar reglur munu spila stórt hlutverk.Bílaframleiðendur standa frammi fyrir mun strangari losunarmörkum frá ESB árið 2026. Þetta mun neyða þá til að selja enn fleiri rafbíla til að forðast háar sektir, sem gæti leitt til betri kjara fyrir neytendur á rafbílum en hærra verðs á brennslubílum.
Hlutdeild rafbíla í Evrópu nái yfir 31% árið 2026
Spáð er að hlutdeild rafbíla í Evrópu nái yfir 31% árið 2026. Búist er við að kínverskir framleiðendur haldi áfram að sækja fram, þrátt fyrir mögulega tolla, þar sem þeir bjóða ódýrari rafbíla en margir evrópskir keppinautar.
Sérfræðingar á þessu markaði segja að árið 2025 hafi verið ár stöðugleika. Árið 2026 verður ár þar sem framleiðendur þurfa að sanna að þeir geti gert rafbílaframleiðslu arðbæra án þess að missa markaðshlutdeild til nýrra keppinauta.







