Forseti FIA í heimsókn á Íslandi

Frá heimsókninni á Bessastöðum. Frá vinstri Steinþór Jónsson. formaður FÍB, Ben Sulayem, forseti FIA, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB.
Lestími: < 1 mín

Mohammed Ahmad Sultan Ben Sulayem, forseti FIA, heimssamtaka bifreiðaeigendafélaga og bílaíþróttafélaga kom í stutta heimsókn til Íslands á dögunum. Auk þess að heimsækja höfuðstöðvar FÍB í Skúlagötu 19 átti Ben Sulayem fund með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, stjórn FÍB og forystumönnum Landssambands íslenskra akstursíþróttafélaga.

Ben Sulayeam vildi með heimsókninni til Íslands, m.a. kynnast af eigin raun starfi FÍB og þá ekki síst ekki síst þeim þætti er lýtur að umferðaröryggismálum. Miðað við íbúafjölda landsins væri FÍB verulega stórt og öflugt. FÍB láti verulega til sín taka, hvort heldur sem er á heimavelli  en líka einnig í alþjóðlegu starfi FIA. Ben Sulayeam lét vel af heimsókn sinni til Íslands en einstök veðurblíða ríkti á landinu á meðan dvöl hans stóð yfir.

Ben Sulayem er fyrrverandi rallökumaður og stjórnandi í akstursíþróttum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann  var kjörinn forseti FIA 2021 sem hefur yfirstjórn með mörgum keppnisviðburðum, þar á meðal Formúlu 1.

Ben Sulayem hóf feril sinn sem rallökumaður á níunda áratugnum. Hann varð einn sigursælasti ökumaðurinn í Mið-Austurlanda rallmeistaramótinu (Middle East Rally Championship) og vann það 14 sinnum.

Í september 2024 var Ben Sulayem skipaður sendiherra sjálfbærrar ferðaþjónustu á vegum Ferðamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UN Tourism) í flokki íþrótta, sem viðurkenning fyrir viðleitni hans til að samþætta sjálfbærni í alþjóðlegum akstursíþróttum.

Ben Sulayem, forseti FIA heimsótti höfuðstöðvar FÍB á Skúlagötu 19. Hann er hér með stjórnarfólki FÍB, starfsmönnum og fulltrúum frá AKIS, akstursíþróttasambandi Íslands.
Deila grein: