Boðun á landsþing FÍB

Lestími: < 1 mín

Félag íslenskra bifreiðaeigenda boðar til landsþings.

Föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 16:00 að Skúlagötu 19, Reykjavík.

Landsþing hefur æðsta vald í málefnum FÍB.

Rétt til setu á landsþingi sem fulltrúi með atkvæðisrétt eiga allir fullgildir félagar í FÍB sem eru skuldlausir við félagssjóð og hafa verið félagsmenn í a.m.k. 6 mánuði fyrir boðað landsþing. Félagsmenn eru hvattir til að tilkynna landsþingsþátttöku sem fyrst eða í síðasta lagi 3. apríl í síma 414 9999 eða með tölvupósti á netfangið fib@fib.is.

Dagskrá og helstu mál:

  • Farið verður yfir starf félagsins og reikninga félagssjóðs.
  • Tillögur stjórnar um lagabreytingar verða ræddar og bornar undir þingið. Lagabreytingarnar miða að því að auka lýðræðislegt aðgengi félagsmanna að stjórn og stefnumótun FÍB.
  • Fjallað verður um neytendamál og umferðaröryggi með sérstaka áherslu á öruggari vegi og umhverfi vega.

Áhugasamir geta nálgast lög félagsins hér.

Deila grein: