Hugsa verði í lausnum líkt og nágrannaþjóðir okkar hafa gert

Lestími: < 1 mín

Eldsneytisverð hefur hækkað skarpt á undanförnum dögum vegna stríðsins í Íran. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, vill að stjórnvöld grípi inn í miklar verðhækkanir líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið.

Runólfur segir ljóst að stjórnvöld verði að koma til móts við heimilin og fyrirtækin í landinu vegna hækkandi eldsneytisverðs. Hækkunarfasinn sé rétt að byrja og ástandið eigi eftir að vara lengi.

Tillaga okkar er að kolefnisgjaldið verði lækkað hressilega

„Við erum því miður að sjá að þessi hækkunarfasi sem við erum að horfa á að verðið hækkar á hverjum degi. Hann er rétt að byrja og þetta á eftir að koma enn verra niður á heimilum og fyrirtækjum í landinu á næstu vikum að óbreyttu. Okkar tillaga er að kolefnisgjaldið verði lækkað hressilega. Það var helmingi lægra í lok árs 2024 og hækkunin hefur verið snörp,“ segir Runólfur.

Runólfur var gestur Kastljóss í gær ásamt Benedikt S. Benediktssyni framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Umræðuna í Kastljósinu er hægt að nálgast hér.

Deila grein: