Mikill samdráttur hjá Honda

Lestími: < 1 mín

Japanski bílaframleiðandinn Honda Motor greindi frá því um helgin frá rúmlega 60% minni hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Ástæðuna má rekja til bandarískra tolla og endurskipulagningarkostnaðar vegna rafbílaframleiðslu fyrirtækisins. Honda bætist þar með í hóp bílaframleiðenda sem verða fyrir miklu tapi vegna rafbíla eftir að eftirspurn eftir tækninni dróst saman.

Dapurleg afkoma Honda kemur í kjölfar alvarlegra viðvarana frá alþjóðlegum bílaframleiðendum á borð við Ford og Stellantis, sem báðir hafa nýlega tilkynnt um gríðarlegar afskriftir tengdar rafbílastarfsemi sinni.

Eftirspurn eftir tækninni hefur minnkað á mörkuðum eins og í Bandaríkjunum, þar sem viðskiptavinir leita í auknum mæli í tvíblendisbíla, hybrid, sem ganga bæði fyrir bensíni og rafmagni, en Toyota hefur verið leiðandi á þeim markaði. Þótt Honda hafi tæpast talist stórveldi á rafbílamarkaði, sagði fyrirtækið að bílaarmur þess hefði skilað tapi á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins sem lauk í desember.

Noriya Kaihara, aðstoðarforstjóri Honda, sagði á afkomufundi að fyrirtækið þyrfti að auka samkeppnishæfni sína með grundvallarbreytingum á stefnumótun, þar sem það stæði frammi fyrir harðnandi alþjóðlegri samkeppni, ekki síst frá nýjum bílaframleiðendum.

Í Kína voru svokallaðir nýorkubílar meira en helmingur seldra bíla á síðasta ári, en sá flokkur nær yfir suma tvíblendisbíla auk hreinna rafbíla. Kaihara sagði að á þeim markaði væri Honda eftirbátur staðbundinna framleiðenda, bæði hvað varðar verðlagningu og hugbúnað.

Aftur á móti sagði Honda að mótorhjólaframleiðslan gengi áfram vel. Alþjóðleg sala, sérstaklega á Indlandi og í Brasilíu, hjálpaði til við að vega upp á móti slakri afkomu í bílasölunni. Fyrirtækið stendur við fyrri spá sína um að rekstrarhagnaður ársins (sem lýkur í mars 2026) verði 550 milljarðar jena.

Deila grein: