Nagladekkjanotkun hefur aukist verulega á Akureyri

Lestími: < 1 mín

Í apríl 2025 var settur upp búnaður til að telja fjölda ökutækja og reikna hlutfall þeirra sem eru á nagladekkjum. Fram að því hafði hlutfallið verið áætlað með sjón- og hljóðmati að því er fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Mælingar sýna að á árunum 2005–2014 voru um 60% bíla á nagladekkjum yfir vetrartímann, en í dag er hlutfallið komið yfir 80%. Jákvætt er þó að ökumenn taka nagladekk undan fyrr á vorin en áður.

Samkvæmt reglum er óheimilt að nota nagladekk á tímabilinu 15. apríl til 31. október, nema brýn nauðsyn sé fyrir hendi vegna hálku eða vetraraðstæðna.

Teljarinn er staðsettur við gangbraut yfir Hlíðarbraut, milli Hlíðarfjallsvegar og Merkigils. Myndavélar nema þegar ökutæki nálgast og virkja hljóðgreiningu til að meta hvort nagladekk séu notuð. Við greininguna eru engin persónugreinanleg gögn vistuð.

Akureyrarbær hvetur ökumenn til að velja nagladekk aðeins þegar aðstæður krefjast þess.

Deila grein: