„Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda, FÍB, í kvöldfréttatíma Sýnar í gærkvöldi.
Þar segir hann að FÍB hafi gagnrýnt olíufélögin fyrir að hafa ekki „skilað eðlilegri lækkun á álagningu til neytenda þegar urðu skattabreytingar“.
Álagning hafi bein áhrif á landsmenn
Runólfur hafði einnig orð á því að álagning hafi bein áhrif á landsmenn og að hver króna skili sér sem upphæð úr vasa neytenda yfir árið. Runólfur vitnar í greiningu sem Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur stéttarfélagsins Visku, birti í dag. Þar kemur fram að álagning á hvern bensínlítra hafi aukist verulega undanfarin fimm ár og hafi svo náð hæstu hæðum hingað til fyrstu tvo mánuði þessa árs.
Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar
„Eldsneytisverð á Íslandi er einfaldlega miklu hærra en það þarf að vera vegna fákeppninnar sem einkennir íslenska markaðinn,“ segir Vilhjálmur í greiningunni.
Runólfur vitnar í þessi orð Vilhjálms og segir það því miður vera rétt sem kom fram í gögnunum og að sömu atriði megi finna í gögnum Samkeppniseftirlitsins. Hann segir að þrátt fyrir að vera „enginn talsmaður opinberra afskipta af mörkuðum“ þá þurfi einhvers konar aðhald að koma til. Á Íslandi ríki í dag fákeppni þar sem að verðinu sé stýrt af einum aðila og að hinir fylgi í kjölfarið.
„Við sjáum það á stærri mörkuðum, eins og til dæmis í Belgíu, Danmörku, Þýskalandi og bara mjög víða í Evrópu að stjórnvöld eru með puttann á svona neysluvöru eins og eldsneyti og setja jafnvel verðþak eins og í Belgíu. Það miðar þá við að verð megi ekki fara yfir það og enginn á markaðnum er að bjóða það verð. Þannig að allir sigla einhvers staðar þar undir,“ sagði Runólfur Ólafsson.
ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu
Fram kemur á visir.is að ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu. Álagning olíufélaga hafi verið í sögulegu hámarki og afkoma þeirra sterk. Engar forsendur séu fyrir því að hleypa hækkunum á heimsmarkaðsverði að fullu út í verðlag og stjórnvöldum beri að sýna aðhald.
Heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað undanfarið vegna átaka í Miðausturlöndum og Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningasviðs hjá Alþýðusambandi Íslands, bendir á að meðalbensínverð hafi hækkað um fimm til sex prósent á milli mánaða hér á landi. Hann hafi þungar áhyggjur af stöðunni og sérstaklega með tilliti til þess að forsendur kjarasamninga verða endurskoðaðar í haust.
„Þetta mun hafa nokkur áhrif inn í verðbólgumælinguna sem kemur í lok mánaðar. Við bentum á það í byrjun árs, í samhengi við upptöku kílómetragjaldsins, að álagning olíufélaganna væri sögulega há og hún hefur hækkað síðustu ár. Þá hefur afkoman verið sterk þannig að við teljum í sjálfu sér enga forsendu fyrir því að þessum hækkunum sé hleypt af fullum þunga út í smásöluverðið,“ segir Róbert m.a. í samtalinu á visir.is.
Viðtalið við Runólf í held sinni má nálgast hér.







