Ástand sem er ekki bjóðandi almenningi

Lestími: 2 mín

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir gullgrafaræði skýra þá þróun sem hefur verið í bílastæðamálum og segir hana græðgisvæðingu sem hafi fengið að ganga allt of langt. Hann skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stigið fastar niður nú þegar.

Fram kom í samtali við forstjóra Neytendastofu í kvöldfréttum Sýnarað kvartanir vegna bílastæðamála séu daglegt brauð hjá stofnuninni. Þetta sé raunin þrátt fyrir að hafa í byrjun júní sektað fimm bílastæðafyrirtæki vegna brota gegn lögum um góða viðskiptahætti og reglum um verðmerkingar.

Græðgisvæðing sem hefði gengið allt of langt

,,Fjölmargar ábendingar og tilvik hafa borist til okkar. Við fórum fyrst að beina sjónum okka,r sérstaklega að þessum málum fyrir liðlega tveimur árum fyrst, og svo síðastliðið vor þá kærðum við nú fyrirtækin fyrir óeðlilegar merkingar og óeðlilega viðskiptahætti og annað í þeim dúr og kvörtuðum yfir að þarna væri græðgisvæðing sem hefði gengið allt of langt og það þyrfti að setja reglur,“ sagði Runólfur Ólafsson í samtali við visir.is.

Runólfur fundaði um málið með síðustu ríkisstjórn en hann bindur vonir við að neytendaráðherra geri eitthvað í málinu en í samtali við fréttastofu sagðist ráðherrann hafa lent í þessu sama.

Runólfur segir að einhvern veginn virðast allir vita af vandamálinu og sem betur fer má segja hefur orðið vakning hjá neytendamálaráðherra þegar hún fékk rukkun á sig núna nýlega og þetta er auðvitað bara einhvers konar ástand sem er ekki bjóðandi almenningi og ég skil ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stigið fastar niður þegar.“

Systursamtök FÍB í öðrum löndum hafa haft samband við FÍB vegna skjólstæðinga sem leitað höfðu til þeirra til vegna himinhárra sekta sem birtust í heimabankanum þeirra þegar þeir voru á ferðalagi um Ísland.

Gjaldtakan dragbítur fyrir fjölskyldur að skoða landið sitt

„Það er svo víða sem pottur er brotinn en þetta virðist vera ákveðið gullgrafaræði því það hafa fleiri farið af stað og stundað þetta, því miður,“ segir Runólfur sem bendir á að þessi þróun hafi ekki aðeins áhrif á þá ferðamenn sem sækja landið heim heldur líka heimamenn sem vilja njóta náttúrunnar.

„Það er með ólíkindum hvað gjaldtökustæðum úti á landi hefur fjölgað, víða eru þetta bara malarplön og þú kemur á stæði og það skiptir ekki máli hvort þú stoppar þar í fimm mínútur eða einn sólarhring, það er þúsund krónur og þetta er orðinn dragbítur fyrir venjulegt fjölskyldufólk á Íslandi að fara um landið með börnin og sýna þeim einhverja svona náttúruvæna staði sem við viljum kynnast á lífsleiðinni,“ segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB.

Deila grein: