Vetrardekkjatímabilinu fer senn að ljúka en að öllu jöfnu skulu sumardekk vera komin undir bílinn þann 14. apríl næstkomandi. Eins og venja er á þessum árstíma hefur FÍB nú birt nýjustu sumardekkjakönnun NAF, sem er aðgengileg félagsmönnum á heimasíðu FÍB.
Að þessu sinni voru tíu gerðir sumardekkja frá ólíkum framleiðendum prófaðar við krefjandi aðstæður. Lagt var mat á margvíslega eiginleika, svo sem hemlun, grip, flotakstur og almenn þægindi. Könnunin er unnin af norska bílaklúbbnum NAF, systurklúbbi FÍB, í samvinnu við sérfræðinga hjá bílablaðinu Motor.
Niðurstöðurnar sýna glöggt hversu mikill munur getur verið á gæðum dekkja í hlutfalli við verð. Þá kemur fram að áhersla á lítið viðnám og lægri eldsneytiseyðslu getur komið á öðrum mikilvægum öryggisþáttum, líkt og hemlunargetu.
Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér könnunina á FIB.is. Þó ekki standi til að endurnýja dekkin strax, þá gefa niðurstöðurnar góða innsýn í það fjölbreytta dekkjaframboð sem er í boði og um leið nýst vel við næstu dekkjakaup.
Munum að dekkin eru eini snertiflötur bílsins við veginn og einn mikilvægasti öryggisþátturinn sem bíleigendur geta sjálfir haft áhrif á.







