Nýskráningar nýrra fólksbifreiða voru 1.385 á fyrstu fjórum vikum nýs árs sem er mun meira en á sama tíma í fyrra. Hlutdeild nýorkubíla er nálægt 90% að því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Ástæða mikillar fjölgunar nýskráninga á fyrstu vikum ársins tengist fyrst og fremst hækkun vörugjalda um áramótin. Af þeim sökum var fjöldi bíla tollafgreiddur fyrir áramót, einkum bílaleigubílar, og þeir síðan skráðir og teknir í notkun í byrjun janúar. Fjölgunin endurspeglar því tímasetningu tollafgreiðslu og skráninga frekar en skyndilega aukna eftirspurn á nýju ári.
Í janúar var hlutdeild núskráninga um 70% til ökutækjaleiga og 30% til almennra notkunar. Hyundai var með langflestar nýskráningar, alls 415. Dacia koma næst með 177 bifreiðar og KIA með 135 bifreiðar í þriðja sæti.







