Nýskráningar nýrra fólksbifreiða það sem af er árinu eru orðnar 1.929 talsins. Á sama tíma á síðasta ári voru þær 973 og nemur aukningin því um 98,3% að því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Þess má geta að í janúar voru nýskráningar 1.385 svo dregið hefur mikið úr sölunni það sem af er febrúar. Ástæða mikillar fjölgunar nýskráninga á fyrstu vikum ársins tengist fyrst og fremst hækkun vörugjalda um áramótin. Af þeim sökum var fjöldi bíla tollafgreiddur fyrir áramót, einkum bílaleigubílar, og þeir síðan skráðir og teknir í notkun í byrjun janúar. Fjölgunin endurspeglar því tímasetningu tollafgreiðslu og skráninga frekar en skyndilega aukna eftirspurn á nýju ári.
Flestar nýskráningar í tengiltvinnbílum
Nýskráningar fólksbifreiða eru flestar til ökutækjaleiga, eða alls 1.266 sem er um 65,6% hlutdeild. 662 bifreiðar eru til almennra notkunar. Það sem af er árinu er nýskráningar flestar í tengiltvinnbílum, eða alls 780 bifreiðar, sem er um 40,4% hlutdeild. Næsti á eftir koma 550 hybdrid-bílar og í þriðja sæti koma 399 hreinir rafmagnsbílar.
Flestar nýskráningar eru í Hyundai, alls 447 bifreiðar, sem er um 23,2% hlutdeild. Dacia er í öðru sæti með 262 bifreiðar og KIA í þriðja sæti með 246.







