Vegagerðin vekur athygli á gulum og appelsínugulum viðvörunum frá Veðurstofu Íslands sem nú eru í gildi og vara fram eftir þriðjudegi. Á morgun, þriðjudaginn 3. júní, eru viðvaranir um allt land og töluverðar líkur á samgöngutruflunum. Reikna má með hvassviðri og ofankomu, slyddu eða snjókomu og hálku til fjalla að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.
Vegna veðurs gæti komið til lokana á vegum með skömmum fyrirvara. Ökumenn eru hvattir til að fylgjast mjög vel með færð og veðri ef ekið er á milli landshluta og sýna fyllstu aðgát og varkárni. Akstursskilyrði geta versnað verulega, einkum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og eru ekki útbúin miðað við aðstæður. Allar upplýsingar um veður og færð eru á umferdin.is og vedur.is.
Vegagerðin er í viðbragðsstöðu og búið er að gera ráðstafanir til að hreinsa vegi eftir þörfum.
Viðvörunin nær til Norðurlands vestra, Norðurlands eystra, Austfjarða og hálendisins. Aðfaranótt þriðjudags er líklegt að það snjói á fjallvegum frá Vestfjörðum og austur á firði.
Norðan stormur verður á Suðausturlandi en vindasamt á Suðvesturlandi. Hvasst verður á sunnanverðu Kjalarnesi og upp í Borgarnes, í uppsveitum, á sunnanverðu Reykjanesi og undir Eyjafjöllum og í kringum Skaftafell.
Um austanvert landið er óvissustig og gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara á eftirfarandi leiðum á morgun, þriðjudag:
Kirkjubæjarklaustur að Höfn og frá Höfn austur að Þvottárskriðum frá kl. 05.-15.
Frá Markarfljóti að Kirkjubæjarklaustri frá 06-12.