Bannað að ganga eða hjóla yfir Stórabeltisbrúna

Lestími: < 1 mín

Það er bannað að ganga eða hjóla yfir Stórabeltisbrúna en brúin eingöngu ætluð vélknúnum ökutækjum. Í október sl. kom upp atvik þegar þýskur ferðamaðurvar á gangi yfir brúna á neyðararkreininni í átt að Fjóni.

Við lögregluna útskýrði hinn 38 ára gamli Þjóðverji nefnilega að hann teldi þetta vera hjólastíg þar sem leyfilegt væri að ganga. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöðina í Korsør. Hann var kærður fyrir brot á umferðarlögum og fékk 700 kr. sekt áður en honum var sleppt.

14.1milljónir ökutækja fóru yfir Stórabelti 2025

Þess má geta að árið 2025 fóru 14.1milljónir ökutækja yfir Stórabelti. Fólksbílar voru 12.321.521, vörubílar 1.709.335, mótorhjól 90.986 og rútur 26.117.

Til upplýsinga, hvað kostar að aka yfir Stórabelti. Ein ferð kostar 205 danskar krónur eða 4.100 íslenskar krónur. Ef keyrt er fram og til baka um helgi, frá föstudegi kl. 12 til sunnudags kl. 24,kostar ferðin samtals 346 danskar krónur, 6.929 íslenskar krónur fyrir venjulegan fólksbíl. Ákveðinn kvöld- og næturafslættir eru í boði, þá kostar að aka fram og til baka 246 danskar krónur.

Deila grein: