Framkvæmdum við Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram. Uppsetning á vegriði og hljóðvegg stendur yfir á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut. Unnið er að undirslætti nýrrar göngubrúar yfir Arnarnesveg. Ný undirgöng eru í byggingu við Rjúpnaveg og í vegstæði Arnarnesvegar er m.a. verið að setja upp ljósastaura. Um 50 manns starfa við verkið; smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Unnið er að frágangi nýju brúarinnar yfir Breiðholtsbraut þar sem verið er að setja upp vegrið og hljóðvegg sem skilur akbrautina frá göngu- og hjólaleiðinni.
Einnig er unnið við undirslátt nýju göngubrúarinnar yfir Arnarnesveg til móts við Turnahvarf. Gert er ráð fyrir að brúin verði steypt fyrir páskana.
Við Rjúpnaveg eru ný undirgöng í byggingu undir Arnarnesveg. Þau eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum sem þegar hafa verið settar á sinn stað. Nú stendur yfir frágangur eininganna og uppsláttur fyrir stoðveggjum sem koma við enda undirganganna.
Ljósastaurar settir upp
Í vegstæði Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, er unnið að fyllingum, uppsetningu ljósastaura og frágangi ofanvatnslagna. Við göngu- og hjólastíginn, sem verið er að leggja austan við veginn er unnið að uppsetningu ljósastaura og frágangi á burðarlagi undir malbik.
Fjölmörgum lykilverkefnum er þegar lokið. Má þar nefna nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu sem er tilbúin og hefur þegar verið tekin í notkun. Nokkrir kaflar á Breiðholtsbraut hafa verið malbikaðir, sem og göngu– og hjólastígar í Elliðaárdal.
Áætlað er að framkvæmdum við Arnarnesveg og tengd mannvirki ljúki í nóvember 2026. Arnarnesvegur, 3. áfangi, er hluti af stofnvegaverkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmálann.







