Fyrsta útboð­ið fyrir Sæbrautar­stokk

Lestími: < 1 mín

Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.

Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026. Útboðsgögn eru aðgengileg og eru afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign.

Um Sæbrautarstokk

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.

Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana.

Eitt af markmiðunum er að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð.

Sæbrautarstokkur er ein af þeim stofnvegaframkvæmdum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Deila grein: