Hringvegurinn austan Hafnar í Hornafirði er lokaður eftir að vegurinn fór í sundur vegna vatnavaxta. Óljóst er hvenær hægt verður að ljúka viðgerð á skemmdinni. Vegurinn er í sundur á um 50 metra kafla.
Hringvegurinn er í sundur vestan Jökulsár í Lóni. Fyrir nokkrum árum var bætt við varnargarði til að stýra vatni betur undir brúna og eldri garður var hækkaður. Það hefur ekki dugað til og er eldri garðurinn í sundur á um 100 metra kafla og því mikið álag á veginn sem hefur rofnað á þessum 50 metra kafla.
Vegagerðarmenn eru á staðnum og búið að leita til verktaka um að fara í verkið. Óljóst er þó á þessari stundu hvað langan tíma tekur að gera við. Aðstæður eru erfiðar þar sem mikill vatnsagi er á svæðinu auk þess erfitt getur reynst að ná í efni til viðgerðar af sömu ástæðu, það er gríðarlega mikð vatn í öllum ám á Suðausturlandi.
Bíllinn sem sést á myndinni er yfirgefinn en vitað er að ökumaðurinn fékk far af staðnum og lögreglu hefur verið gert viðvart, ekki er ljóst hvað ökumaðurinn hugðist fyrir eða hversvegna hann lagði í vatnið í stað þess að snúa við.
Uppfært:
Hringvegurinn við Jökulsá í Lóni verður lokaður fram á morgun vegna vatnsskemmda. 50 metra kafli á veginum er farinn og annar tveggja varnargarða sem stýra vatninu undir brúna er í sundur á um 100 metra kafla.
Þá hefur Vegagerðin einnig lokað veginum milli Djúpavogs og Hafnar í Hornafirði eftir að vegkafli fór í sundur.