Í tilkynningu frá Samgöngustofa kemur fram að tekið hefur verið í notkun nýtt rafrænt kerfi fyrir afgreiðslu undanþága. Umsóknarferlið helst að mestu óbreytt en umsækjendur eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi breytingar sem fylgja nýja kerfinu.
Helstu breytingar
- Nú þarf rafræna innskráningu sem fer fram í gegnum Ísland.is.
- Kerfið er samtengt ökutækjaskrá og aðeins hægt að sækja um undanþágu fyrir einn bíl eða eina vagnlest hverju sinni.
- Sé sótt um þyngdarundanþágu þarf að skrá bil milli ása í umsókn.
- Umsækjendur þurfa að setja inn greinargóða leiðarlýsingu frá upphafsstað til áfangastaðar
Afgreiðsla undanþága helst óbreytt að öðru leyti og berast samþykktar undanþágu áfram í tölvupósti.







