Taka þurfi upp nýjar og sanngjarnar leiðir til fjármögnunar innviða

Lestími: < 1 mín

Jari Kauppila forstöðumaður hjá Alþjóðlega samgönguvettvagnum, International Transport Forum (ITF), sem starfar innan vébanda OECD, var gestur á dögunum. Hann fjallaði um fjárfestingar í samgöngum og leiðir til að fjármagna innviðauppbyggingu í alþjóðlegu samhengi eins og fram kemur á vef stjórnarráðsins.

Helstu niðurstöður voru að taka þurfi upp nýjar og sanngjarnar leiðir til fjármögnunar innviða sem gangi jafnt yfir öll ökutæki, þ.m.t. rafbíla. Einnig væri mikilvægt að fjárfesta í almenningssamgöngum og innleiða skýra fjármögnunar- og fargjaldastefnu fyrir þær.

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra fluttu einnig erindi á þinginu. Allar upptökur og kynningarglærur eru á vef Innviðaþings.

Ísland í fararbroddi vegna áforma um kílómetragjöld

Jari fjallaði um þá staðreynd að þróuð ríki standi frammi fyrir minnkandi tekjum af eldsneytissköttum vegna sparneytnari ökutækja og orkuskipta. Það kalli á nýjar og sanngjarnar leiðir fyrir stjórnvöld að fjármagna innviðauppbyggingu, m.a. með innheimtu veggjalda eftir vegalengd (kílómetragjöld) og flýti- og umferðargjalda vegna mikillar umferðar.

Sérstaklega væri mikilvægt að eigendur rafbíla greiði einnig fyrir akstur og notkun á vegum. Jari sagði að í þessum efnum væri Ísland í fararbroddi á heimsvísu, m.a. með áformum um innleiðingu kílómetragjalds sem gangi jafnt yfir öll ökutæki, þ.m.t. rafbíla.

Áhrif rafvæðingar var rannsakað í nýlegri skýrslu á vegum ITF. Lagt er til að nýta blandaðar leiðir til fjármögnunar í takt við aðstæður á hverjum stað. Helstu tillögur skýrslunnar voru:

  • Nýta áfram og endurbæta hefðbundna eldneytisskatta og tryggja að skattlagning endurspegli samfélagslegan kostnað umferðar.
  • Taka upp einföld veggjöld eftir vegalengd, einkum til að rafbílar greiði sanngjarna hlutdeild.
  • Viðbótargjöld á umferðarteppur þar sem þörf krefur – hvati til að dreifa umferð og greiða fyrir umferð.
  • Íhuga að eyrnamerkja tekjur af umferðargjöldum til að styðja við virka ferðamáta og almenningssamgöngur.
Deila grein: