Umferð á Hringvegi eykst á fyrstu mánuðum ársins

Lestími: < 1 mín

Umferðin á Hringveginum í janúar og febrúar jókst um u.þ.b. fjögur prósent í báðum mánuðum miðað við sömu mánuði fyrir ári síðan. Þetta er töluverð breyting en líklega má rekja aukninguna að miklu leyti til þess að tíðarfar var gott í þessum mánuðum og óveður og ófærð leiddu ekki til minni aksturs almennings eins og oft áður. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Milli mánaða 2025 og 2026
Umferðin í janúar og febrúar var umtalsvert meiri á Hringveginum, en í sömu mánuðum á síðasta ári. Umferðin í janúar jókst um 4,2% en í febrúar um 3,9%. Aldrei áður hefur verið jafn mikil umferð í umræddum mánuðum á Hringveginum. Helsta ástæða þessarar miklu aukningar nú kann að eiga sér skýringu í hagstæðri færð á vegum núna í ár.

Mest jókst umferð yfir mælisnið á Vesturlandi en minniháttar samdráttur var í umferð í grennd við höfuðborgarsvæðið. Núna hefur umferð aukist um 4% frá áramótum miðað við aðeins 1,4% aukningu á sama tíma á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist um Vesturland, en minnst á og í grennd við höfuðborgarsvæðið.

Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári hefur verið mest ekið á föstudögum en minnst á laugardögum. Hlutfallslega hefur umferð aukist mest á laugardögum en tæplega 0,7% samdráttur varð í umferð á þriðjudögum.

Deila grein: