Umferðar­hávaði kort­lagður

Lestími: 2 mín

Vegagerðin, í samvinnu við nokkur sveitarfélög, hefur látið kortleggja umferðarhávaða frá umferðarþyngstu vegum í þéttbýlum landsins. Niðurstöður kortlagningarinnar eru aðgengilegar í kortasjá og á vef Umhverfis- og orkustofnunar (UOS). Þar má m.a. sjá vísbendingar um hvar umferðarhávaði er yfir æskilegum mörkum. Gögnin nýtast jafnframt sem grunnur að aðgerðaáætlun sveitarfélaga til að draga úr umferðarhávaða. Kortin má sjá hér: Hávaðakort (í kortasjá) og kort ásamt tilheyrandi greinargerðum (pdf) 

Kortlagningin byggir á reiknaðri hávaðadreifingu sem sýnir útbreiðslu hávaða frá umferð á vegum fyrir árið 2022. Á kortunum má sjá hver meðalhávaði er allan sólarhringinn frá umferð á vegum í 4 metra hæð yfir jörðu. Jafnframt sýna þau umferðarhávaða frá vegum með umferð yfir 3 milljónir ökutækja á ári. Hávaðakortin byggjast á útreikningum en ekki hávaðamælingum.  

Ástæða þess að Vegagerðin réðst í þetta verkefni er sú að veghöldurum ber að kortleggja hávaða frá umferðarþungum vegum á fimm ára fresti, samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins. Í kjölfarið ber sveitarfélögum að vinna aðgerðaáætlanir, sem byggja á niðurstöðum kortlagningarinnar. Reglugerðin felur hins vegar ekki í sér bindandi skyldur fyrir sveitarfélögin.

Kortlagningin er fyrst og fremst samræmd upplýsingaöflun fyrir aðildarríki Evrópusambandsins en þjónar einnig sem hvatning til sveitarfélaga til að gera aðgerðaáætlanir og bregðast við vísbendingum um of miklum umferðarhávaða.    

Íslensk reglugerð um hávaða kveður á um viðmiðunargildi sem ber að uppfylla í skipulagsgerð og nýbyggingum. Hávaðavísarnir í evrópsku og íslensku reglugerðunum eru þó ekki samræmdir. Evrópska reglugerðin miðar við hávaðavísi fyrir heildarónæði (Lden) í 4 metra viðmiðunarhæð, sem hentar vel fyrir stórborgarsvæði, á meðan íslenska hávaðareglugerðin miðar við jafngildishljóðstig (Leq) í 2 metra viðmiðunarhæð sem er viðeigandi fyrir lágreista byggð sem á víðast hvar við á Íslandi. Hávaðavísir fyrir heildarónæði (Lden) felur í sér aukið vægi fyrir umferð á kvöldin og næturnar samanborið við jafngildishljóðstig (Leq). Vegagerðin reiknar ekki hávaða frá iðnaðarsvæðum, höfnum eða flugvöllum. 

Kortlagningin var nú í fyrsta sinn gerð með nýrri samræmdri, evrópskri aðferð (CNOSSOS), en niðurstöðum var skilað í upphafi árs 2025. 

Verkfræðistofan EFLA vann útreikninga, gerði kort og tók saman niðurstöður fyrir Vegagerðina og sveitarfélögin að undangengnu útboði. 

Sveitarfélögin sem tóku þátt í verkefninu eru: Akureyri, Árborg, Borgarbyggð, Garðabær, Hafnarfjörður, Hveragerðisbær, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjanesbær og Reykjavík. 

Deila grein: