Vitundarvakning um ferðavenjur í samgönguviku

Lestími: < 1 mín

Evrópska samgönguvikan hófst í þessari viku, og stendur til 22. september, en þema vikunnar er Samgöngur fyrir öll. Skilaboðin felast í hvatningu um að leggjast á eitt við að skapa aðgengilegt og öruggt samfélag fyrir alla – óháð hreyfigetu.

Frá árinu 2002 hafa ríki, borgir og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir og vinna að sjálfbærum samgöngum. Það er gert með borgar- og samgönguskipulagi svo þægilegt og öruggt sé að ganga eða hjóla til og frá vinnu og heimilis. 

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. 

Reykjavíkurborg hefur ávallt staðið fyrir viðburðum í þessari viku og hvatt borgarbúa til að velja heppilega ferðamáta. Íbúar geta til að mynda skoðað hvort breytilegur ferðamáti komi til greina, til að mynda að ganga einn dag í viku, hjóla eða fara með strætó. 

Viðburði má nálgast á vefsíðum sveitarfélaga, auk Facebook síðu vikunnar.

Deila grein: