Stellantis eykur áherslu á dísilvélar á ný leik. Þetta gerist þrátt fyrir að sala á dísilbílum hafi dregist verulega saman í Evrópu frá Volkswagen-hneykslinu árið 2015, og að dísilbílar hafi verið undir 8% af nýskráningum árið 2025. Rökstuðningur fyrirtækisins er sá að það finni fyrir skýrri eftirspurn eftir dísilvélum meðal almennings.
Þetta kemur ári eftir að Carlos Tavares var vikið úr starfi forstjóra, en í kjölfarið endurvakti Stellantis í Bandaríkjunum hina frægu Hemi V8-vél í Ram 1500 pallbílnum, hætti við tengiltvinnútgáfur af Chrysler og Jeep og stöðvaði þróun á rafdrifnum Ram.
Kynna dísilvalkosti á ný í gerðum frá Opel, Peugeot og Citroën
Samkvæmt Reuters mun Stellantis ekki aðeins halda áfram framleiðslu á dísilútgáfum af Alfa Romeo Giulia, Stelvio og Tonale, ásamt DS 7, heldur einnig kynna dísilvalkosti á ný í gerðum frá Opel, Peugeot og Citroën. Stellantis ætlar auk þess að víkka út úrval véla í tilteknum bílgerðum til að mæta þörfum markaðarins.
Þessa stefnubreytingu verður að skoða í ljósi þess að eftirspurn eftir rafbílum í Evrópu hefur verið minni en væntingar stóðu til. Á sama tíma sækja kínverskir bílaframleiðendur sífellt meira í sig veðrið á rafbílamarkaðnum.
Bílaframleiðendur settir undir þrýsting
Staðan setur marga bílaframleiðendur undir þrýsting og veldur því að Stellantis leggur nú áherslu á að aðgreina sig með því að halda fleiri valkostum opnum lengur en upphaflega stóð til. Það hjálpar einnig til að ESB hefur að einhverju leyti mildað kröfur um útblástur með því að lengja frestinn sem framleiðendur hafa til að ná CAFE-markmiðunum um CO2-losun.
Stellantis er einn af stærstu bílaframleiðendum heims, en fyrirtækið varð til árið 2021 við samruna tveggja risa, ítalsk-bandaríska samsteypunnar Fiat Chrysler Automobiles (FCA) og frönsku samsteypunnar PSA Group.
Þótt nafnið „Stellantis“ sé tiltölulega nýtt, þá á fyrirtækið mörg af þekktustu bílamerkjum sögunnar. Samstæðan er með höfuðstöðvar í Hollandi og undir hana heyra hvorki meira né minna en 14 vörumerki: Má þar nefna Peugeot, Citroën, DS, Opel og Vauxhall, Fiat, Alfa Romeo, Maserati, Lancia, Abarth, Jeep, Chrysler, Dodge og Ram.







