Umferð eykst á Hringvegi á milli mánaða

Lestími: < 1 mín

Umferðin, yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar, á Hringveginum jókst um 4,6% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þetta er viðsnúningur frá mars mánuði þs sem mældist 1,6% samdráttur yfir sömu mælisnið. Meðalumferðaraukning í apríl mánuði er um 3,4%, frá árinu 2005, svo núverandi aukning er 1,2 prósentustigum yfir meðaltali að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Mest jókst umferðin yfir mælisnið á Norðurlandi eða rúmlega 24% en 1,1% samdráttur varð í umferð yfir mælisnið á og við höfuðborgarsvæðið.

Af einstaka mælisniðum reyndist mesta aukningin vera yfir mælisnið á Mývatnsöræfum eða 46,7%. Þó þetta kunni að hljóma mikið þá ber að geta þess að um þetta mælisnið fer einungis um 0,9% af heildarumferðar um mælisniðin 16.

  Samantektartafla nr. 3
  2025/20242024/2023
  Milli apríl mánaðaUppsafnað frá áramótumMilli apríl mánaðaUppsafnað frá áramótum
  
  
  
Landssvæði
Suðurland 5,5%-1,0%3,8%11,5%
Höfuðborgarsvæðið-1,1%0,3%8,3%7,5%
Vesturland 12,0%4,6%-7,6%2,6%
Norðurland 24,2%8,9%-17,0%-0,3%
Austurland 18,2%5,2%-10,7%1,9%
Samtals (vegið)4,6%1,5%1,8%6,6%

Nú hefur umferð aukist um 1,5%, frá áramótum, miðað við sama tíma á síðasta ári. Þetta er mun minni aukning (rúmlega fjórum sinnum minni) en á sama tíma á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist um Norðurland en minniháttar samdráttur mælist um Suðurland, það sem af er ári.Umferð eftir vikudögum

Frá áramótum er mest ekið á föstudögum en minnst á laugardögum. Mest hefur umferð aukist mánudögum en lítilháttar samdráttur mælist í umferð, í miðri viku, eða á miðviku- og fimmtudögum.

Nú þegar fjórir mánuðir eru liðnir af árinu 2025, stefnir í að umferð þetta árið geti aukist um 5% borið saman við árið 2024. Búist er við mestri aukningu um Norður- og Austurland en minnstri aukningu á og við höfuðborgarsvæðið. Athygli er vakin á því að þegar umferðartölur fyrir mars og apríl eru skoðaðar, verður að hafa í huga staðsetningu páska.

Deila grein: