Ákveðið neyðarástand ríkir í innviða- og vegakerfinu hérlendis

Lestími: < 1 mín

Ákveðið neyðarástand rík­ir í innviða- og vega­kerfi lands­ins, að mati Run­ólfs Ólafs­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Fé­lags ís­lenskra bif­reiðaeig­enda. Hann seg­ir alltof al­gengt að bik­blæðing­ar verði á bæði vet­urna og sumr­in. Hann kall­ar eft­ir því að notað verði mal­bik frek­ar en klæðning á vegi lands­ins.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið seg­ir Run­ólf­ur mjög al­gengt að til­kynna þurfi tjón til trygg­inga­fé­laga vegna bik­blæðinga.

Mikið hef­ur verið um bik­blæðing­ar á síðustu vik­um vegna sól­ar og hlý­inda. Flest­ar til­kynn­ing­ar um bik­blæðing­ar hafa komið af Vest­ur­landi.

FÍB hefur áhyggjur af stöðu mála

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir við Morgunblaðið að félagið hafi miklar áhyggjur af stöðu mála, blæðingarnar séu mikið vandamál. Þær séu orðnar alltof algengar og verði bæði á veturna og sumrin. Hann segir mjög algengt að tilkynna þurfi tjón til tryggingarfélaga vegna afleiðinga bikblæðinganna.

Runólfur segir ákveðið neyðarástand ríkja í innviða- og vegakerfinu hérlendis og vill að malbik verði notað frekar en klæðning.

Bergþóra Krist­ins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu­sviðs Vega­gerðar­inn­ar, seg­ir við Morgunblaðið að til­kynn­ing­ar einnig hafa borist frá Aust­ur­landi, Norður­landi og upp­sveit­um Suður­lands. Hún seg­ir mal­bik fimm sinn­um dýr­ara en klæðningu og að ekki fá­ist fjár­magn til að mal­bika allt vega­kerfið. 

Bergþóra brýnir fyrir fólki að aka hægt um svæði þar sem bikblæðingar eru og tilkynna til Vegagerðarinnar ef það verður vart við blæðingar.

Deila grein: