Forvarnardagur ungra ökumanna

Lestími: < 1 mín

Hátt í fjögur hundruð nemendur í fyrsta bekk Verzlunarskóla Íslands tóku þátt í Forvarnardegi ungra ökumanna í gær. Bílslys var sviðsett á bílastæði skólans og fengu nemendur að fylgjast með viðbragðsaðilum athafna sig á vettvangi. Þetta er í fyrsta sinn sem forvarnardagurinn er haldinn á höfuðborgarsvæðinu.

Nemendur hlýddu á fyrirlestur um umferðaröryggi, þar sem megináhersla var lögð á hættuna sem fylgir því að nota síma undir stýri, akstur undir áhrifum, hraðakstur og bílbeltanotkun, sem hefur dregist saman meðal ungs fólks.

Markmið verkefnisins er að fræða ungt fólk um umferðaröryggi með það að markmiði að gera þau að ábyrgari þátttakendum í umferðinni. Lögð er áhersla á að gera þeim grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera ökumaður, sem og að fræða þau um ýmsa þætti sem tengjast því að vera ungur og óreyndur ökumaður. Meginmarkmið forvarnadagsins er að fækka umferðarslysum og auka öryggi í umferðinni.

Deila grein: