Það á ekki lengur að nægja að tvö svokölluð PEth-próf sýni neyslu áfengis til þess að ökumaður missi ökuskírteinið, að sögn sænsku Umferðarstofunnar (Transportstyrelsen).
Margir ökumenn hafa misst ökuskírteini sín eftir að hafa gengist undir svokölluð PEth-próf. Þau eiga að mæla hversu mikið áfengi einstaklingur hefur neytt en prófin hafa sætt harðri gagnrýni.
Umferðarstofan er nú að endurskoða hvaða kröfur þurfi að uppfylla til að hægt sé að svipta ökuskírteini. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni.
Áður hefur nægt að tvö PEth-próf væru bæði yfir viðmiðunarmörkum til sviptinga ökuleyfis. Með nýju reglunum þarf að minnsta kosti eitt af þremur viðbótarskilyrðum að vera uppfyllt. Þau eru fráhvarfseinkenni vegna áfengis, skert vitræn færni og skortur á stjórn vegna áfengisneyslu.
Þó er áætlað að reglurnar taki ekki gildi fyrr en á seinni helmingi ársins 2025. Auk þess verður skipaður sérstakur sérfræðingahópur sem mun fara yfir þau mál sem byggja eingöngu á fáum PEth-prófum. Þá er hægt að kalla eftir frekari upplýsingum frá lækni eða sjúklingi.
,,Við erum meðvituð um að það er talið ósanngjarnt að fólk missi ökuskírteinið eingöngu á grundvelli fárra PEth-prófa. Við tökum þær áhyggjur sem eru í samfélaginu vegna möguleikans á að missa ökuskírteinið á óvissum grundvelli mjög alvarlega,“ segir Katarina Norén, deildarstjóri hjá Umferðarstofunni.