Tafir á umferð á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka – framkvæmdir klárast í vikunni

Lestími: 2 mín

Miklar umferðartafir hafa verið á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka á síðustu vikum vegna framkvæmda sem þar standa yfir. Vegna þessa hefur mikillar óánægju gætt meðal vegfarenda sem þar fara um og þá ekki síst á meðal íbúa í Árbænum sem eiga þar leið um.

Á annatíma, á morgnana og seinni partinn, þegar vegfarendur eru á leið til vinnu og úr vinnu, hafa orðið miklar umferðatafir.

Slökkviliðið er með slökkvistöð á Tunguhálsi stutt frá þessum gatnamótum. Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, að ekki hefði fundist formleg beiðni til okkar um umsögn vegna þessarar framkvæmdar. Spurður hvort þessi þrenging hafi haft áhrif á viðbragðstíma slökkviliðsins kveðst Jón Viðar ekki hafa spurst fyrir um það.

 „Helstu áhrifin virðast vera hægri beygjan frá Bæjarhálsi inn á Höfðabakka, þar sem slaufan hefur verið tekin af,“ segir Jón Viðar við Morgunblaðið.

Fram kemur í viðtali Elvar Örn Þórisson, formann íbúasamtaka Árbæjar, í Morgunblaðinu þetta var enn eitt klúðrið í framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar. Umferðin er orðin óbærileg, tafir gríðarlegar og fólk forðast að keyra þessa leið.

Ný ljósastýring og akreinaskipan á Höfðabakka

Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að framkvæmdum við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls miði vel og er áætlað að þær klárist í vikunni.

Verið er að setja upp umferðarljósabúnað og taka skynjara í notkun, sem þýðir að ljósastýringin verður sveigjanlegri og betra jafnvægi næst á milli akstursstefna.

Markmið breytinganna er fyrst og fremst að auka öryggi gangandi og hjólandi, bæta tengingar við stígakerfið án þess þó að heildartafir umferðar aukist.

Breytingar á norðurleggi Höfðabakka við Bæjarháls

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að áður voru fjórar akreinar í suðurátt á Höfðabakka, tvær vinstribeygjureinar, ein áfram og ein hægribeygjurein á framhjáhlaupi. 

Umferðartalningar sýndu litla eftirspurn eftir hægribeygju auk þess að framhjáhlaupið skapaði hættu fyrir gangandi vegfarendur, þ.e. ökumenn koma af hraðri götu (Höfðabakka) yfir á hægari götu (Streng).

Umferðartalningar sýna að tvöfalt meiri eftirspurn er eftir því að fara beint áfram yfir gatnamótin en að beygja til vinstri. Því var miðakreininni breytt. Nú eru þrjár akreinar: ein vinstribeygja, ein áfram og ein blönduð áfram/hægri.

Með þessu minnkar hætta á slysum á gönguþverun og akstursflæði í beinu áframstreymi verður skilvirkara að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar.

Breytingar á Bæjarhálsi

Á Bæjarhálsi voru þrjár akreinar í vesturátt: vinstribeygja, blönduð áfram/vinstri og hægribeygjuframhjáhlaup. Framhjáhlaupið var fjarlægt þar sem það reyndist bæði hættulegt og torveldaði tengingar hjóla- og göngustíga.

Talningar sýna að daglega fara þar yfir um 100 hjólandi einstaklingar á Bæjarhálsi og 150 hjólandi á Höfðabakka. Í hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að stofnstígur liggi meðfram Höfðabakka og áfram austur um Dragháls og Krókháls að Grafarholti og Úlfarsárdal. Þar verða aðskildir stígar fyrir gangandi og hjólandi, og nýja fyrirkomulagið gerir ráð fyrir þeirri þróun segir í tilkynningunni.

Slysagreiningar sýndu einnig að aftanákeyrslur voru algengar á hægribeygju framhjáhlaupinu. Því þótti öruggast að láta hægribeygju þar stýrast af umferðarljósum. Fjöldi akreina verður þó óbreyttur í báðar áttir.

Næstu skref

Unnið er hörðum höndum að því að koma nýrri ljósastýringu í gagnið og eftir það verður fylgst náið með þróuninni. Ef breytingar hafa ófyrirséð áhrif á nærliggjandi gatnakerfi verður gripið til aðgerða en vonir standa til að flæðið verði betra fyrir alla vegfarendur.

Framundan er endurnýjun ljósabúnaðar á fleiri gatnamótum, við Höfðabakka, við Vesturlandsveg, Dvergshöfða, Stórhöfða og Bíldshöfða.

Nánari upplýsingar um framkvæmdirnar má finna á framkvæmdasíðunni um Höfðabakka.

Deila grein: