Vinstri beygja bönnuð

Lestími: < 1 mín

Nú er bannað að beygja til vinstri þegar ekið er um Bríetartún í Reykjavík og að gatnamótum við Borgartún. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir að þrátt fyrir áberandi merkingar hafi þetta vafist fyrir sumum ökumönnum sem hafi fengið sekt fyrir vikið. 

Í tilkynningunni eru ökumenn minntir á að virða þessi umferðarmerki sem önnur, bæði öryggisins vegna en líka til að forðast óþarfa útgjöld, en sektin fyrir þetta brot er 20 þúsund kr.

Deila grein: