Vegagerðin hefur að undanförnu unnið að þrifum á sínum götum á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklega hagstæð veðurskilyrði er nýtt til þessara framkvæmda núna. Reykjavíkurborg stendur einnig á sama tíma í þrifum á sínum götum.
Þess má geta að búið er að sópa allar stofnæðar og tengigötur Kópavogi þrisvar sinnum. Sömu sögu má segja af öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Á þessum árstíma er yfirleitt verið að moka snjó eða hálkuverja götur en í janúar mældist enginn snjór í Reykjavík. Mánuðurinn var þannig snjólaus með öllu. Þetta ekki einsdæmi en þó verður að fletta býsna langt aftur í bókum sínum til að finna svipaða tíð. Tíðarfarið að undanförnu er samt óvenjulegt í alla staði.







