,,Almenningur átti sig ekki á því hvað þetta eru ofboðslega háar tölur”

Lestími: 2 mín

Stórfelld hækkun álaga á umferð og eigendur ökutækja er fyrirsjáanleg fyrir atbeina ríkisstjórnarinnar, en með tilkomu álagningar þeirra veggjalda sem áformuð eru, ásamt gjöldum sem lögð voru á um sl. áramót, mun hækkunin nema rúmum 41 milljarði króna á ári. Þetta segir Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins í samtali við Morgunblaðið en hann á sæti í fjárlaganefnd Alþingis.

Þessar auknu álögur eru af fernum toga. Þær eru vegna innheimtu veggjalda á höfuðborgarsvæðinu sem ætlað er að fjármagna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem borgarlínan er hluti af, vegna veggjalda sem ætlunin er að renni til innviðafélags, en frumvarp um það er nú til meðferðar á Alþingi.

Þá mun kílómetragjaldið, sem innheimt hefur verið frá áramótum, skila auknum tekjum til ríkissjóðs sem og vörugjöld af ökutækjum sem hækkuð voru stórlega um sl. áramót.

Kílómetragjaldið muni skila 3,3 milljörðum meiri tekjum til ríkissjóðs

Stefán Vagn segir ennfremur í samtalinu við Morgunblaðið að kílómetragjaldið muni skila 3,3 milljörðum meiri tekjum til ríkissjóðs en þau eldsneytisgjöld skiluðu sem kílómetragjaldið leysti af hólmi. Þó hafi því verið haldið fram að kílómetragjaldið ætti að vera tekjuhlutlaust, þ.e. að skila sömu tekjum í ríkissjóð og eldsneytisgjöldin. Þá á hækkun vörugjalda af ökutækjum að skila 7,5 milljörðum til viðbótar í ríkissjóð.

Stefán Vagn nefnir að veg- og flýtigjöldum á höfuðborgarsvæðinu sé ætlað að skila 13 milljörðum á ári og tekjur af veggjöldum vegna Sundabrautar, Ölfusárbrúar og Fljótaganga eigi að skila 7,5 milljörðum. Þá eigi Hvalfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng að skila 9,8 milljörðum. Á milli 40 og 50 milljarðar.

Ekki öll kurl til grafar komin

„Þetta er samtals 41,1 milljarður á ári sem á að leggja á eigendur bifreiða á hverju ári í umferðargjöld og vörugjöld. Ég held að almenningur átti sig ekki á því hvað þetta eru ofboðslega háar tölur,“ segir Stefán Vagn og bendir á að með þessu séu þó ekki öll kurl til grafar komin, því einnig séu hugmyndir uppi um að innheimta veggjöld af umferð á Suðurlandsvegi, Vesturlandsvegi og Reykjanesbraut.

Stefán segir að þótt ríkisstjórnin segi að gjaldtaka af umferð hafi lengi verið í umræðunni hafi aldrei verið rætt um að skella gjöldunum öllum á í einu.

Verðmiðinn er orðinn á milli 40 og 50 milljarðar á almenning á ári

„Það hvarflaði ekki að neinum að gera þetta allt í einu lagi. Verðmiðinn er orðinn á milli 40 og 50 milljarðar á almenning á ári umfram það sem verið hefur, fyrir það að keyra um á vegunum. Mér finnst það allt of hátt. Það er ekki hægt að leggja þessi gjöld öll á almenning,“ segir Stefán Vagn í viðtalinu við Morgunblaðið.

Deila grein: