Bílasala fer hægt af stað í Evrópu

Lestími: < 1 mín

Bílasala í Evrópu á þessu ári hefur farið frekar hægt af stað en á sama tíma eru áhugaverðar vendingar í því hvaða orkugjafa fólk er að velja. Salan á nýjum bílum í Evrópusambandinu dróst saman um tæp 4% í janúar miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er annað árið í röð sem árið byrjar með samdrætti. Stærstu markaðirnir, eins og Þýskaland og Frakkland, fundu mikið fyrir þessu og lækkuðu um rúm 6%.

Þrátt fyrir að færri bílar seljist í heildina, þá eru hreinir rafbílar að auka hlutdeild sína verulega. Hlutdeild rafbíla fór í tæp 20% í janúar en var um 15% í fyrra.Salan á hreinum rafbílum jókst um rúm 24% á milli ára í ESB. Tengiltvinnbílar (PHEV) sýndu einnig mikinn vöxt, eða tæp 29%.

Bensín og dísel í frjálsu falli

Það er greinilegt að neytendur eru að hverfa frá hefðbundnum brunahreyflum. Salan á bensínbílum hrundi um meira en 28% í janúar. Díselbílar héldu áfram að dala og drógst salan saman um rúm 22%. Þeir eru nú aðeins með um 8% markaðshlutdeild.

Kínverski bílaframleiðandinn BYD hefur farið geyst af stað á þessu ári. Sala þeirra í Evrópu jókst um meira en 175% í janúar og þeir stefna á að tvöfalda fjölda sölustaða sinna í álfunni á árinu.

Horfurnar fram undan

Horfurnar fyrir árið er að búist er við að það verði áframfyrir bílaframleiðendur vegna efnahagslegrar óvissu, en spáð er að rafbílar muni halda áfram að vinna markaðshlutdeild og nálgast það að verða stærri en bensínbílar á næstu mánuðum.

Deila grein: