Tveimur vikum eftir að Neytendastofa sektaði fjögur bílastæðafyrirtæki hafa þau ekki brugðist við. Fyrirtækin voru sektuð fyrir ónógar eða villandi upplýsingar um gjaldskrá og innheimtu. Stutt yfirferð FÍB sýnir að engar úrbætur hafa verið gerðar.
Enn viðhafðir sömu viðskiptahættir
Aðallega sektaði Neytendastofa vegna þess að engar upplýsingar var að finna á bílastæðunum um þjónustugjald sem leggst ofan á bílastæðagjaldið. Sem dæmi má nefna að á bílastæði Parka við Egilsgötu 3 eru enn viðhafðir sömu viðskiptahættir og Neytendastofa bannaði, þ.e. engar upplýsingar um þjónustugjald.
Á bílastæði Isavia á Reykjavíkurflugvelli er enn ranglega fullyrt stórum stöfum að um sjálfvirkt greiðslukerfi sé að ræða. Hvergi kemur fram að sjálfvirka greiðslan virkar aðeins ef viðkomandi bíll er skráður með sjálfvirka greiðslu í gegnum Autopay eða Parka. Þetta virkar ekki fyrir þá sem eru með Easypark eða eru ekki með greiðslukort tengt við sjálfvirkar greiðslu hjá Autopay eða Parka.