Vinna sett af stað í ráðuneytinu vegna gjald­töku bíla­stæðafyr­ir­tækja

Lestími: 2 mín

„Það sem svíður mest er þessi marg­föld­un á greiðslu fyr­ir bíla­stæði ef fólk greiðir ekki inn­an skamms tíma, jafn­vel sól­ar­hrings. Þetta er ekki í lagi,“ seg­ir Hanna Katrín Friðriks­son at­vinnu­vegaráðherra um gjald­töku bíla­stæðafyr­ir­tækja í samtali við mbl.is

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, hef­ur sett af stað vinnu í at­vinnu­vegaráðuneyt­inu auk þess að hafa rætt við Eyj­ólf Ármanns­son innviðaráðherra sem fer með mál­efni um­ferðarlaga, um að ná utan um þá óreiðu og oft og tíðum marg­föld­un á bíla­stæðagjaldi ef ekki er greitt á svæðinu sem heim­sótt er inn­an skamms tíma.

Snýr vinn­an að því að safna upp­lýs­ing­um um fyr­ir­tæki sem sjá um gjald­töku á bíla­stæðum víðs veg­ar um landið að því er fram kemur á mbl.is.

Danski samgönguráðherrann greip til sinna ráða

Nýlega fjölluðu fibfrettir.is  um ágreining danska samgönguráðherrans við bílastæðafyrirtæki um rafræna innheimtu bílastæðasekta í Danmörku. FDM systurfélag FÍB í Danmörku hefur lengi barist gegn því að innheimtukröfur vegna bílastæðaafnota, á bílastæðum með stafrænu myndavéla eftirliti, fari sjálfkrafa í rafræna innheimtu. Nú hefur samgönguráðuneytið danska gefið út leiðbeinandi tilmæli um það hvernig skuli standa að slíkum innheimtum.

Danski samgönguráðherrann, Thomas Danielsen, hefur nú staðfest að frá 1. júlí 2025 verða  aðeins þær bílatæðainnheimtur lögmætar sem búið er að festa á bíl eða afhenta ökumanni af stöðuverði. Þetta er ekki ný túlkun heldur útskýring á gildandi reglum segir samgönguráðuneytið.

Viðskiptahættir á mjög gráu ef ekki svörtu svæði

FÍB hefur á liðnum misserum ítrekað komið því á framfæri við íslensk stjórnvöld að hér séu viðskiptahættir fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum um margt á mjög gráu ef ekki svörtu svæði.

FÍB hafa komið ábendingum á framfæri við innviðarráðherra

Fulltrúar FÍB hafa komið ábendingum vegna þessa ófremdarástands persónulega á framfæri við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra og einnig við Sigurð Inga Jóhannesson þegar hann var innviðaráðherra í síðustu ríkisstjórn. Það hefur fram að þessu ríkt algert andvaraleysi hjá stjórnvöldum gagnvart þeirri óbeisluðu græðgisvæðingu sem grafið hefur um sig á íslenskum bílastæðamarkaði. Núverandi ástand er aðför gegn neytendum, ferðaþjónustunni, almannarétti og útivist.

Deila grein: