Á sama tíma og margir evrópskir bílaframleiðendur, þar á meðal BMW, Mercedes-Benz og Volkswagen, fækka starfsfólki eða íhuga niðurskurð, veðjar Tesla á frekari vöxt í Evrópu.
Bandaríski framleiðandinn áformar mikla stækkun á risaverksmiðju sinni í Grünheide rétt utan fyrir utan Berlín, með það að markmiði að gera hana að stærstu bílaverksmiðju Þýskalands. Tesla ætlar að fjárfesta fyrir þrjá milljarða evra, 440–450 milljarðar íslenskra króna, í nýrri framleiðslueiningu fyrir sjálfkeyrandi leigubílinn Cybercab. Samkvæmt áætlunum á verksmiðjan til lengri tíma litið að geta framleitt allt að eina milljón Cybercab-bíla á ári.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist um mitt ár 2027 en fyrstu bílarnir eiga að geta rúllað af færibandinu árið 2029. Tesla hefur þegar lokið við að ryðja svæðið sem á að stækka og greint er frá því að umsókn um byggingarleyfi verði send inn á næstunni.
Vekur upp spurningar
Ef áformin verða að veruleika mun verksmiðjan hafa afkastagetu sem fer fram úr stærstu bílaverksmiðju Þýskalands í dag, sem er aðalverksmiðja Volkswagen í Wolfsburg. Verksmiðjan í Grünheide framleiðir í dag Tesla Model Y og hefur hámarksafkastagetu upp á 375.000 bíla á ári. Auk þess áformar fyrirtækið fjöldaframleiðslu á rafhlöðusellum frá árinu 2027.
Stækkunin vekur þó um leið spurningar um grundvöll þessarar fyrirhuguðu stórsóknar. Cybercab er enn sem komið er aðeins í notkun sem sjálfkeyrandi leigubílaþjónusta á afmörkuðum svæðum í Austin í Texas og er í dag ekki samþykktur sem almennur fólksbíll í Bandaríkjunum. Elon Musk, forstjóri Tesla, hefur lengi lofað alveg sjálfkeyrandi bílum, en enginn bílaframleiðandi hefur hingað til sýnt fram á sjálfkeyrandi bíla á 5. stigi í almennri umferð.
Áformin njóta engu að síður stuðnings verkalýðsfélagsins IG Metall, sem telur að verkefnið geti skapað nýjan vöxt í og fjölgað störfum á svæðinu. Í verksmiðjunni starfa í dag um 12.600 manns eftir að starfsmönnum fjölgaði um 2.000 á árinu.






