Heimsmarkaðsverð hráolíu hefur fallið hratt síðustu daga að sögn Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra FÍB. Verðið hefur verið mjög sveiflukennt síðustu misseri, meðal annars vegna átaka Bandaríkjanna og Íran. Runólfur var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann sagði það furðulegt að eldsneytisverð hér á landi virðist hækka í takt við heimsmarkaðsverðið en ekki lækka.
Verð hafi ekki lækkað hér á landi í takt við lækkun verðs hráolíu líkt og í nágrannalöndunum
Runólfur gagnrýnir að eldsneytisverð hafi ekki lækkað hér á landi í takt við lækkun verðs hráolíu líkt og í nágrannalöndunum. Hann segir álagningu olíufélaganna of háa.
„Við sáum þessa þróun gerast. Heimsmarkaðsverð snarhækkar og orkuverðið fer upp. Það gerðist líka í nágrannalöndum okkar, til dæmis Danmörku. 1. september síðastliðinn fór virðisaukaskattur á eldsneyti aftur í 24 prósent úr ellefu prósentum. Það varð strax veruleg verðhækkun þá og það hefur hækkað meira síðan þá. Þetta gerðist mjög svipað í Danmörku en í dag er eldsneyti ódýrara en það var þá. En hér er sama krónutalan,“ segir Runólfur.
Álagning olíufélaganna sé einfaldlega of há
Álagning olíufélaganna sé einfaldlega of há. Runólfur hefur áður kallað eftir þaki á álagninguna.
„Hvaða fréttir voru hér fyrir mánuði síðan? Uppgjör hjá einu af stóru félögunum þar sem kom fram að það hafi óvænt verið miklu meiri arðsemi á eldsneytissölu. Hvað segir það okkur? Álagningin er allt of há,“ segir Runólfur.






