Bílasala í Evrópu á þessu ári hefur einkennst af hægri en jafnri aukningu, en á sama tíma eru miklar vendingar og breytingar í gangi varðandi orkugjafa og eftirspurn. Salan fór frekar hægt af stað í byrjun ársins en tók við sér þegar á leið. Á fyrsta ársfjórðungi varð um 4% aukning í heildarsölu nýrra bíla í Evrópu.
Áhugaverðar breytingar hafa orðið á vali kaupenda þar sem hröð færsla á sér stað yfir í rafmagnaða orkugjafa, t.d. tengiltvinn-bíla og hreinna rafbíla, þó að eftirspurn og vaxtarhraði breytist eftir einstaka mörkuðum og stuðningsaðgerðum stjórnvalda.
Stigvaxandi samkeppni
Hefðbundnir evrópskir framleiðendur mæta stigvaxandi samkeppni, sérstaklega á rafbílamarkaði frá kínverskum framleiðendum og öðrum alþjóðlegum keppinautum, sem hefur þrýst á verðlagningu og framboð.
Slíkar sveiflur skýrast meðal annars af efnahagsástandi, vaxtastigi og breytingum á styrkjum og ívilnunum fyrir rafbíla á stærri mörkuðum eins og í Þýskalandi og Frakklandi.
Nýskráningar nýrra fólksbifreiða á þessu ári hér á landi eru alls orðnar 10.668. Á sama tíma í fyrra voru þær 11.030 og er því um 3,3% samdrátt að ræða á milli ára af því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Sala á rafbílum á Íslandi hefur verið ágæt á árinu en stendur nú á tímamótum vegna nýrra reglna um ríkisstyrki sem taka gildi 1. nóvember næstkomandi. Stjórnvöld hafa tilkynnt lækkun á styrkjum til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum.
Styrkurinn fer úr 500.000 krónum niður í 400.000 krónur fyrir nýja fólksbíla. Hámarksverð á bílum sem eru styrkhæfir lækkar úr 10 milljónum króna niður í 8 milljónir króna. Þessar breytingar gætu haft áhrif á nýskráningar á næstu tveimur vikum fyrir breytingar.







