Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með búnaðinum er hægt að loka brautinni með stuttum fyrirvara, sem styttir viðbragstíma og eykur öryggi bæði vegfaranda og viðbragðsaðila.
Vaktstöð Vegagerðarinnar getur nú lokað Reykjanesbraut til vesturs, til dæmis vegna slysa eða þegar færð spillist, með fjarstýrðum búnaði. Ekki þarf lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á staðinn til að setja upp lokanir, oft við erfiðar aðstæður í myrkri og mikilli umferð.
Lokunin fer fram í nokkrum skrefum til að leiðbeina ökumönnum og beina umferð á öruggan hátt í rétta átt.
- Hraðinn lækkaður. Hraðaskilti, um 500 metrum frá lokunarstað, lækka leyfðan hámarkshraða úr 90 km/klst. í 70 km/klst. Rauð blikkljós kvikna jafnframt beggja vegna vegarins.
- Vinstri akrein lokað. Akreinaskilti vísa allri umferð yfir á hægri akrein.
- Báðum akreinum lokað. Næsta skilti sýnir lokun á báðum akreinum til vesturs.
- Umferð beint frá brautinni. Síðasta skiltið vísar ökumönnum út af Reykjanesbraut og niður að hringtorginu við Rauðamel.
- Hjáleið um Reykjanesbraut til austurs. Frá hringtorginu er umferð beint aftur inn á Reykjanesbraut til austurs, í átt að Hafnarfirði og Reykjavík.
- Lokunarslár fara niður. Fyrst fer sláin við hringtorgið niður og um tíu sekúndum síðar tvær slár á Reykjanesbrautinni sjálfri. Áberandi ljós eru á slánum og rauð blikkljós gefa skýr merki um að lokað hafi verið fyrir umferð.
Ökumenn upplýstir áður en komið er að lokun
Við álverið í Straumsvík er upplýsingaskilti sem að jafnaði birtir veðurupplýsingar frá Strandarheiði. Þegar Reykjanesbraut er lokað getur Vaktstöð birt þar skilaboð á borð við „Vegur lokaður – snúið við á næstu gatnamótum“ eða „Vegur lokaður vegna umferðaróhapps“.
Þannig fá ökumenn upplýsingar um ástæðu lokunar áður en þeir koma að henni og geta brugðist við í tíma.
Öryggi í fyrirrúmi
Með búnaðinum þarf ekki lengur að senda fólk út á akbrautina til að stöðva umferð, sem er ein hættulegasta stund hvers útkalls. Lögregla, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir geta þannig einbeitt sér að vettvangi og þeim sem á aðstoð þurfa að halda, í stað þess að stýra umferð.






