Aldrei áður mælst meiri umferð í september á höfuðborgarsvæðinu

Lestími: < 1 mín

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í september reyndist tveimur prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Aldrei hefur mælst meiri umferð í september. Þrátt fyrir það hefur umferðin frá áramótum aðeins aukist um 0,4 prósent sem er minna en útlit var fyrir í upphafi árs samkvæmt tölum frá Vegagerðinni.

Aukning varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í september, miðað við sama mánuð á síðasti ári ef marka má þrjú lykilsnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls mældist aukning um 2% fyrir mælisniðin þrjú. Aldrei hefur áður mælst jafn mikil umferð í umræddum mánuði, í þessum mælisniðum. Benda má á að hlutfallsleg aukning var aðeins meiri en á Hringvegi (1,8%) milli mánaða.

Öll mælisniðin sýndu aukningu á umferð en mesta aukningin var á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um 3%.

Umferð eftir vikudögum 2026
Mest var umferðin á föstudögum og minnst á sunnudögum í september. Umferð dróst lítillega saman á föstudögum en jókst mest á sunnudögum eða um rúmlega 6%. Umferð hefur aukist um 0,4% frá áramótum miðað við sama tíma árið 2025. Almennt er að draga úr áætlaðri aukningu miðað við horfur í upphafi árs.

Deila grein: