Mun nýi bíllinn frá Jaguar snúa blaðinu við?

Lestími: 2 mín


Fyrir fimm árum hafði Jaguar verið óarðbært í nokkur ár og á erfiðum stað fjárhagslega.
Það voru þrír valkostir í boði: loka fyrirtækinu án nokkurs ávinnings, að gera breytingar á núverandi bílum til að draga úr kostnaði og vona að ástandið skánar, eða að framleiða nýja bílalínu sem myndi vonandi endurvekja áhuga á vörumerkinu. Þriðji valkosturinn var fyrir valinu hjá Jaguar. Þetta býður upp á nýja möguleika fyrir framtíðina en á sama tíma fylgir því áhætta.

Fimm árum seinna og Jaguar hefur kynnt nýja bílinn sem fékk nafnið Type 01. Bíllinn hefur einstakt útlit, mjög minimalískur í hönnun og minnir á lúxus bifreið frá framtíðinni. Þá er stóra spurningin hvort Type 01 geti bjargað vörumerkinu og endurvakið arfleifð Jaguar?

Hönnun bílsins

Jaguar framkvæmdu markaðsrannsóknir sem gáfu í skyn að væntanlegir kaupendur horfðu fyrst og fremst til ytra og innra útlit, en auk þess hvaða ímynd bíllinn gæfi þeim. Það var mest lagt áherslu á ,,sál” og ,,persónuleika”. Að Type 01 væri rafknúinn var hins vegar talsvert neðar á forgangslistanum.

Árið 2020 setti Jaguar af stað innanhúss samkeppni, þar sem þrjú hönnunarteymi tóku þátt. Kröfurnar voru að bíllinn átti að gefa merki um heildarbreytingu, vera sláandi í útliti og líkjast engu öðru á markaðnum. Auk þess þurfti hönnunarstíllinn að nýtast sem grunnur fyrir framtíðar framleiðslufyrirtækisins.

Afl og drægni

Sérstök smíði nýja Type 01 felur í sér að rafhlöðunum er skipt upp í tvö hólf, framan og aftan í bílnum, sem gerir farþegum kleift að sitja mjög lágt. Ef notast hefði verið við hefðbundna flatbotna rafhlöðu hönnun hefði bíllinn orðið 20 sentímetrum hærri, sem hefði gjörbreytt bílnum.

Drifrásin samanstendur af þremur rafmótorum, einum að framan og tveimur að aftan, sem skila bílnum rétt yfir 1.000 hestöflum. Type 01 er í kringum 3,2 sekúndur frá kyrrstöðu í hundrað. Það er alls ekki slæmt og er þetta kraftmesti Jaguar til þessa. Opinber drægni bílsins er í kringum 720 km samkvæmt WLTP-staðlinum. Bíllinn styður 350 kW hraðhleðslu sem getur bætt við ríflega 320 km drægni á aðeins hálftíma. 

Deila grein: