Lögreglu hafa borist nokkrar tilkynningar vegna skemmdarverka á bifreiðum í Reykjavík. Hakakross var rispaður á bifreið í Vesturbænum í síðustu vikui. Alls hafa 6 bílar verið skemmdir. Lögreglan er með málið til rannsóknar
Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að svo virðist vera sem einhver faraldur sé í gangi. Hann segir málið í rannsókn.
Lögreglan greini frá því sl. fimmtudag að þrjár tilkynningar hefðu borist um skemmdarverk á kyrrstæðum bifreiðum í Vesturbæ. Þar segir að skemmdarvargurinn, eða skemmdarvargarnir, hafi rispað bifreiðarnar með lykli eða öðru áhaldi svo mikið tjón hlaust af.
Í hverfahópi Vesturbæjar Reykjavíkur á Facebook má sjá að hakakross var rispaður á minnst einn bíl í hverfinu á miðvikudag.
Síðan á fimmtudag hafa þrjár tilkynningar til viðbótar borist lögreglu, tvær vegna skemmdarverka á bifreiðum í Vesturbæ og ein í miðbæ Reykjavíkur.







