Hellisheiði verður lokuð fyrir umferð í sjö klukkustundir í dag, 9. október, vegna malbikunarviðgerða.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður heiðinni lokað klukkan 9 og gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi til klukkan 16.
Lokunin nær til umferðar til vesturs í átt til Reykjavíkur og verður hjáleið um Þrengslaveg. Vegfarendur eru beðnir að aka varlega og virða merkingar.
Í kvöld frá klukkan 20 til klukkan 16 á morgun verða framkvæmdir á Reykjanesbraut milli Kaplakrika og Kauptúns. Lokað verður fyrir vinstri beygju á gatnamótum við Álftanesveg. Umferðin á Reykjanesbraut ekur meðfram vinnusvæðinu samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.







