Close up of the fuel nozzle refueling car at the gas station.

Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir nýjum gögnum frá olíufyrirtækjunum vegna þróunar eldsneytisverðs

Lestími: < 1 mín

Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir nýjum gögnum frá olíufyrirtækjunum vegna þróunar eldsneytisverðs undanfarna mánuði. Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur haldist hátt í sögulegu samhengi. Eftirlitið segir í tilkynningu því mikilvægt að fylgjast áfram vel með verðmyndun og samkeppnisaðstæðum á eldsneytismarkaði, eins og nánar er rakið í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.

Athugunin beinist meðal annars að því hvernig breytingar á innkaupsverði eldsneytis hafa skilað sér í útsöluverði til neytenda, hvaða áhrif þær hafa haft á álagningu olíufélaganna og hvort vísbendingar séu um samkeppnishindranir á markaðnum.

Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum FÍB og ASÍ

Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum FÍB og ASÍ. Samkvæmt greiningu FÍB hefur meðalverð bensínlítrans hækkað um 27 krónur frá 1. september þegar tímabundinni lækkun virðisaukaskatts lauk. Meðalverð á dísillítra hefur hækkað um 51 krónu.

Skattalækkun skilaði sér til neytenda

Samkeppniseftirlitið hefur jafnframt lokið athugun á því hvort tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, sem gilti frá 1. maí til 31. ágúst síðastliðins, hafi skilað sér að fullu til neytenda. Niðurstaða eftirlitsins er að verðbreytingar á tímabilinu hafi að mestu fylgt breytingum á undirliggjandi kostnaði og að skattalækkunin hafi skilað sér að fullu til neytenda. Eftirlitið telur því ekki forsendur til frekari aðgerða á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir.

Sú niðurstaða tekur eingöngu til þess tímabils sem lögin giltu og felur ekki í sér afstöðu til annarra atriða sem varða verðlagningu eða samkeppni á eldsneytismarkaði.

Nánar er fjallað um niðurstöður athugunarinnar og áframhaldandi eftirlit með eldsneytismarkaðnum í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins sem má sjá sjá hér.

Deila grein: