Norðurlöndin grípa til aðgerða vegna rafskútuslysa

Lestími: 3 mín

Á síðustu þremur árum hafa yfir fimm hundruð manns leitað á bráðamóttöku eftir að hafa dottið af rafskútu. Tugir þeirra hafa hlotið alvarlega áverka og varanlegan miska. Tvö banaslys tengd rafskútum hafa orðið í Reykjavík á síðustu árum. Einn af hverjum 6.000 sem leigja sér rafskútu endar á bráðamóttökunni. Þriðjungur fullorðinna er undir áhrifum áfengis. Fjórir læknar hafa birt niðurstöður rannsóknar sinnar á rafskútuslysum og um þær er fjallað í Læknablaðinu sem kom út í vikunni.

Helmingurinn undir áhrifum um helgar

„Virku dagana er það 17% að meðaltali sem er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar að þeir slasast á rafskútum en um helgar er um helmingurinn sem viðurkennir að hafa verið undir áhrifum þegar slysið varð,“ segir Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir og einn læknanna sem kom að rannsókninni á rafskútuslysum í viðtali á RÚV í umfjölluninni um málið.

Á meðal niðurstaðana sem fram koma í rannsókninni leita að tveir á bráðamóttökuna á hverjum degi vegna rafskútuslysa. Miðgildi aldurs er 30 ár en aldursbilið er 6-85 ára. Fjórðungur er yngri en 18 ára. Fram kemur ennfremur að karlar eru líklegri tila ðs slasa sig en konur en þeir voru 68% þeirra sem leituðu á bráðamóttöku. 34% slasaðra viðurkenndi að vera undir áhrifum áfengis, 17% á virkum dögum og 50% um helgar. Langflestir voru hjálmlausir, eða 84%.

Mælum eindregið með að þetta sé stoppað

Í umfjölluninni á RÚV kom fram að það eru fleiri en einn séu á rafhlaupahjóli. Hjalti Már sagði  sú hegðun virðist vera mun algengari meðal barna og ungmenna undir 18 ára aldri og í þeim hópi voru 20% sem að gáfu upp að þau hafi verð tvö eða jafnvel þrjú á rafskútunni þegar að slysið varð. Þetta er náttúrlega mun hættulegra heldur en að vera einn og við mælum eindregið með að þetta sé stoppað og að börn séu ekki að gera þetta

Hjalti Már sagði við RÚV alveg sannfærður um að mjög öflugt forvarnarátak á vegum Samgöngustofu hefur skilað árangri og sérstaklega hvað varðar slys á börnum og yngri börnunum þá einkum. Rafskútur eru umhverfisvænar en þær eru bara ekkert sérstaklega hollar. Það er bara umtalsverð slysatíðni sem þeim fylgir.

Strangir skilmálar og hjálmskylda almenn

Ef staðan á Íslandi er borin saman við hin Norðurlöndin hafa þau gripið til gripið til margvíslegra aðgerða til að bregðast við þessum vanda. Á Norðurlöndunum gætir bæði skýrari lagasetningar og betra skipulags heldur en áður hefur þekkst.

Í Danmörku eru strangir skilmálar og hjálmskylda er almenn. Oft hefur verið bent á að Danir hafa verið í framvarðarsveit þegar kemur að því að hafa stjórn á rafskútum. Danmörk var með þeim fyrstu til að setja lögboðna hjálmaskyldu fyrir alla aldurshópa sem tekin var upp 2022. Það þarf að vera að minnsta kosti  að vera orðinn 15 ára til að aka rafskútu einn í umferðinni. Lagaskylda er á ábyrgðartryggingu fyrir rafskútur sem ná yfir ákveðinn hraða. Skúturnar eiga að vera á merktum hjólareinum eða götum, en aldrei á gangstígum gangandi vegfarenda.

Bann við leigu á rafskútum yfir helgarnætur

Í Noregi er aldurstakmarkanir og bann við ölvunarakstri. Á svæðinu í kringum Osló hefur verið tekið mjög fast á þessum málum vegna mikils fjölda slysa á sínum tíma. Rafskútur eru skilgreindar sem létt ökutæki og það eru skýr mörk varðandi hámarkshraða, 20 km/klst.  Norðmenn hafa skilgreint akstur undir áhrifum áfengis á rafskútu nákvæmlega eins og akstur hefðbundins bíls, með tilheyrandi háum sektum eða sviptingu ökuskírteina. Hjálmaskylda er á börnum undir 15 ára aldri.  Í Osló og víðar hafa borgaryfirvöld sett á bann við leigu á rafskútum yfir helgarnætur, t.d. frá kl. 23:00 eða 01:00 til morguns, til að minnka stórlega slysatíðni tengda áfengisnotkun og skemmtanalífi.

Bannað er að skilja þær eftir á gangstígum

Í Svíþjóð er umræðan um hertar reglur eftir mikla slysabylgju. Sænsk stjórnvöld og samgönguyfirvöld hafa undanfarið verið að skoða og þrýsta á hertar reglur í þessum efnum.  Þar á meðal annars að taka upp almenna hjálmaskyldu og setja skýrari aldurstakmörk í líkingu við það sem gert er í Danmörku og Noreg . Í Stokkhólmi hefur verið komið upp sérstaklega merktum stæðum fyrir rafskútur og bannað er að skilja þær eftir á gangstígum.

Í Finnlandi er sama uppi á teningnum. Stór hluti alvarlegra slysa tengist ölvun. Rannsóknir sýndu að rafskútufólk er margfalt líklegra til að vera undir áhrifum en til dæmis reiðhjólafólk. Mikið af slysum eiga sér stað um helgar og seint á kvöldin eða á næturnar í tengslum við skemmtanalíf. Ný lög og reglur tóku gildi 2025 þar sem börn yngri en 15 ára mega ekki keyra rafskútur, hvorki einkaskútur né leiguskútur. Lögboðin áfengismörk voru sett fyrir rafskútur, 0,5 prómill, sem samræmist almennum mörkum við akstur bíla í Finnlandi. Lögreglan hefur fylgt þessu eftir með sérstöku eftirliti og sektum. Þótt hjálmaskylda sé ekki formlega lögboðin fyrir alla aldurshópa er almenn hjálmanotkun eindregið ráðlögð af yfirvöldum.

Deila grein: