Núverandi hraði U9 Xtreme virðist ekki vera nóg fyrir BYD

Lestími: < 1 mín

BYD er leiðandi vörumerki á bílamarkaðnum, bæði erlendis og á Íslandi. Þessi mikli vöxtur og aukin markaðshlutdeild hafa gert fyrirtækinu kleift að búa til ný og sérhæfð vörumerki undir BYD vörumerkinu.

Eitt helsta verkefnið er Yangwang vörumerkið sem endurspeglar margt af því sem besta sem BYD býður upp á þegar kemur að tækni, skilvirkni og frammistöðu. Yangwang er einmitt á bak við rafmagns ofur bílinn U9 Xtreme, sem sýnir magnaða möguleika rafmagns mótorsins. 

U9 Xtreme hefur slegið heimsmetið sem hraðskreiðasti bíllinn en hann náði 496 km/klst. Allur þessi kraftur kemur 3.000 hestafla rafhlöðuafli sem getur náð allt að 30.000 snúningum á mínútu. Flestir væru sáttir með að slá heimsmet og myndu láta það duga en ekki BYD, þeir vilja reyna á það ómögulega.

BYD mun gera tilraun til að rjúfa 500 km/klst múrinn í Dubai.

Stella Li, aðstoðarforstjóri BYD, hefur sagt opinberlega að fyrirtækið stefnir á að ná enn meiri hraða með U9 Xtreme í nóvember. BYD mun gera tilraun til að rjúfa 500 km/klst múrinn í Dubai. Til þess að framkvæma tilraunina þarf teymið að minnsta kosti 15 kílómetra langan vegakafla og vinnur með yfirvöldum að finna hentugan stað. Nánari upplýsingar um stað og stund eru þó ekki gefnar upp.

Það verður áhugavert að sjá hvort U9 Xtreme nái þessum mikla áfanga, en lögmál eðlisfræðinnar taka breytingum við slíkan hraða. Það mun því vera erfitt verkefni að ná þessum hraða á öruggann hátt. 

Deila grein: