Isavia á Keflavíkurflugvelli rukkaði félagsmann í FÍB um 890 krónur fyrir að vera með bíl sinn í tvær mínútur á komubílastæðinu (P2) við flugvöllinn. Þessar tvær mínútur bættust við klukkutíma bið félagsmannsins eftir farþega, en fyrir þann klukkutíma var hann krafinn um 690 krónur. En þar með var veislunni ekki lokið, því við bættist 1.490 krónu „þjónustugjald“ fyrir að krafan var ekki borguð innan 48 tíma. Samtals 3.070 krónur fyrir 62 mínútna stopp á bílastæðinu.
Ólíkt öðrum gjaldskyldustæðum hér á landi rukkar Isavia heilan klukkutíma eftir að ókeypis biðtíma lýkur (ýmist 15 eða 30 mínútur). Skiptir engu hvort stæðið hafi verið notað í eina eða 60 mínútur umfram frítímann.
Þjónustugjaldið
Ef ekki er borgað með appi eða í greiðsluvél innan 48 tíma, þá krefst Isavia 1.490 krónu „þjónustugjalds“ fyrir að senda greiðslukröfu í heimabanka bíleigandans. Fyrir slíka aðgerð rukkar Þingvallaþjóðgarður 130 krónur. En ef greitt er tímanlega fær viðskiptavinurinn vitaskuld ekki þessa „þjónustu“.
Fjölmargt sem getur tafið

Ljóst er að 30 mínútna frítíminn á P2 komustæðinu er of stuttur. Komutími farþega úr flugi fer sjaldnast eftir klukkunni. Ótal atriði geta tafið fyrir. Sjaldnast er vitað fyrirfram hvort flugvél leggur upp að flugstöðinni eða hvort fara þarf með rútu að henni. Síðarnefnda aðferðin tekur einatt lengri tíma. Vont veður getur tafið. Biðtími eftir töskum getur verið mjög mismunandi.
Það er því í raun algjört happdrætti hvort gjaldfrjálsu 30 mínúturnar duga fyrir bíla sem bíða. Og jafnvel þó farþegar séu komnir út í tæka tíð, þá tekur tíma að setja töskurnar í bílinn og koma sér af stað.
Isavia þarf að lengja fría biðtímann
Ekki dugar að kaupa sér tíma með því að keyra út af bílastæðinu áður en hálftíminn er liðinn og svo inn aftur. Isavia heimilar 30 ókeypis mínúturnar ekki nema einu sinni á sólarhring fyrir hvern bíl. Við innakstur á nýjan leik hefst því klukkutíma gjaldtaka.
Miðað við þann ófyrirsjáanleika sem er á því að farþegar komist út úr flugstöðinni í Keflavík eftir lendingu, þá þyrftu fyrstu 60 mínúturnar á P2 stæðinu að vera fríar. Engin hætta er á að bílstjórar bíði lengur en nauðsyn krefur.







