,,Hækkandi eldsneytisverð hefur neikvæð áhrif á atvinnulífið“

Lestími: 2 mín

,,Það er þrennt sem skýrir það að bensínverð hefur rokið upp síðasta mánuðinn. Hækkunin nemur um 50 krónuum á lítrann. Það er hækkandi heimsmarkaðsverð á jarðefnaeldsneyti, hækkun virðisaukaskatts til fyrra horfs 1. september og hækkandi krónutöluálagning olíufélaganna. Þetta segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB í samtali við Morgunblaðið.

Runólfur rifjar upp, í samtali við Morgunblaðið, að þau rök sem færð voru fyrir lækkun virðisaukaskatts á jarðefnaeldsneyti 1. maí sl. hafi verið skýr: að draga úr áhrifum hækkunar olíuverðs á heimsmarkaði og hemja innlenda verðbólgu.

„Þau rök sem færð voru fyrir lækkun virðisaukaskattsins þá eru ef eitthvað er sterkari í dag og verðið heldur hærra nú en þá. Það sem af er þessum mánuði hefur verðið hækkað hressilega og neytendur eru að greiða mun hærra verð nú en þeir greiddu í lok ágústmánaðar,“ segir Runólfur.

50 króna verðmunur á lítranum nú og síðasta dag ágústmánaðar

„Þegar virðisaukaskatturinn hækkaði aftur þann 1. september sl. þá hækkaði lítraverðið að meðaltali í kringum 25 krónur. Ofan á það hefur síðan lítraverðið hækkað um 23-24 krónur í mörgum tilvikum og við erum að sjá um 50 króna verðmun á lítranum nú og síðasta dag ágústmánaðar,“ segir hann.

Á sama tíma hafi komið fram að til stæði að hækka kílómetragjald um 15-16% um áramót sem almenningur og fyrirtæki þyrftu að taka á sig. Ekki sé hægt að hafa áhrif á heimsmarkaðsverð, en stjórnvöld réðu ferðinni þegar að skattlagningu kæmi.

Það er verið að hella olíu á eldinn

„Það á ekki að bæta í og hækka skatta á sama tíma. Það er verið að hella olíu á eldinn,“ segir Runólfur og rifjar upp að fjármálaráðherra hafi sagt að fólk þyrfti að taka á sig þessar hækkanir, ætti að þola sársaukann. Einnig skjóti skökku við að kílómetragjald hækki langt umfram verðlagsþróun. Hækkandi eldsneytisverð hefur neikvæð áhrif á atvinnulífið,“ segir Runólfur Ólafsson í samtalinu við Morgunblaðið.

Deila grein: