Í greiningu Viðskiptaráðs sem birt var í byrjun vikunnar kemur í ljós að skattar á nýjan bensínjeppa eru nú hærri en innflutningsverð bílsins. Há vörugjöld á innflutta bíla leiða til eldri og óöruggari bílaflota og leggjast ójafnt á landsmenn eftir búsetu. Viðskiptaráð leggur til að vörugjöld verði afnumin og nýir bílar beri almennan virðisaukaskatt eins og aðrar vörur.
Viðskiptaráð vinnur að því að efla íslenskt efnahagslíf og skapa þannig forsendur til framfara og bættra lífskjara. Við erum frjáls félagasamtök sem hafa starfað samkvæmt þessu leiðarljósi frá árinu 1917.
Í greiningunni kemur fram að gjaldtaka af bílum er mikil á Íslandi. Um síðastliðin áramót voru gerðar kerfisbreytingar þar sem kílómetragjald var tekið upp, samhliða afnámi eldsneytisgjalda, hækkun kolefnisgjalds og hækkun vörugjalda á bensín- og dísilbíla. Hækkun vörugjalda leiddi til þess að skattur á nýja bíla getur nú verið hærri en innflutningsverð þeirra.
Skattur ofan á skatt
Í janúar á þessu ári var gerð breyting á vörugjöldunum sem varð til þess að gjöld á innflutta bensínbíla hækkuðu verulega (mynd 1). Vörugjald bíla reiknast af innflutningsverði bíls og virðisaukaskattur leggst síðan á samtölu þeirra. Sem dæmi ber bensínjeppi með losun yfir 207 g/km nú 70% vörugjald.
Með virðisaukaskatti verður heildarskattheimtan 111% af innflutningsverði og skattaálögur á bílinn þannig orðnar hærri en innflutningsverð bílsins. Sparneytinn bensínbíll ber 74% heildarskatt og tengiltvinnbíll 61%, nær tvöfalt meira en fyrir breytingu. Rafbílar greiða aðeins virðisaukaskatt, en þar sem kaupstyrkur Orkusjóðs lækkaði, hækkuðu ódýrari rafbílar líka í verði um áramótin að því er fram kemur í greiningunni.
Frá byrjun árs 2026 greiða allir bílaeigendur kílómetragjald, sem er hugsað sem notkunargjald fyrir vegakerfið. Eigendur bensín- og dísilbíla greiða að auki kolefnisgjald af hverjum lítra, en það hækkaði um 30% samhliða upptöku kílómetragjalds.
Innleiðing kílómetragjaldsins og afnám eldsneytisgjalda jók rekstrarkostnað sparneytnari bíla, en gerði rekstur eyðslufrekari bíla hlutfallslega hagkvæmari. Breyting vörugjaldanna lagði síðan þyngri skatta á nýskráningu bíla sem losa meira kolefni. Einu bílarnir sem nutu góðs af skattkerfisbreytingum um áramótin voru því eldri og eyðslufrekari bílar.
Þessi umfangsmikla skattlagning á nýja bíla veldur því að viðskipti eiga sér ekki stað sem annars hefðu átt sér stað. Það gerir það að verkum að ríkið fær engar tekjur og neytandinn sem annars hefði notið ábata af viðskiptunum nýtur hans ekki heldur. Í hagfræði er þetta kallað allratap, þ.e. þegar viðskipti eiga sér ekki stað og ábati tapast, t.d. vegna umfangsmikillar skattlagningar. Í því dæmi sem hér er skoðað minnka kaup á nýjum bílum, sem eru jafnan sparneytnari og öruggari en eldri bílar. Því er ljóst að allratapið er verulegt.
Skattlagning á kostnað öryggis
Hægari endurnýjun bílaflotans veldur því jafnframt að hann verður hættulegri. Bandarísk rannsókn sýnir að líkur á að láta lífið í banaslysi eru nærri tvöfaldar í bíl sem er eldri en 18 ára, samanborið við nýja bíla (mynd 2). Þetta er vegna þess að nýrri bílar eru jafnan búnir betri öryggisbúnaði sem dregur úr líkum á alvarlegum afleiðingum slysa.
Hér á landi hafa að meðaltali 11 til 12 látist í banaslysum á ári undanfarinn áratug og um 195 slasast alvarlega í umferðinni. Samfélagslegur kostnaður umferðaslysa hefur verið metinn um 80 ma. kr. á ári. Því er afar óskynsamlegt að skattleggja nýja öruggari bíla óhóflega og þannig hægja á endurnýjun bílaflotans.
Óraunhæfur kostur úti á landi
Skattlagning sem leggst sérstaklega á bíla knúna jarðefnaeldsneyti bitnar jafnframt frekar á fólki sem er búsett langt frá höfuðborgarsvæðinu. Rafbílar eru 20% fólksbíla á höfuðborgarsvæðinu en aðeins 5% á Vestfjörðum, séu bílaleigubílar undanskildir.
Tölurnar sýna skýrt að þeim mun lengra sem farið er frá höfuðborgarsvæðinu, þeim mun sjaldgæfari eru rafbílarnir. Þetta er einkum vegna þess að hleðslunetið er enn gisið og vegalengdir lengri. Jafnframt á enn eftir að tryggja hleðslustöðvar í hverjum þéttbýliskjarna og sums staðar eru enn yfir 100 kílómetrar á milli hleðslustöðva.
Afnám vörugjalda þjóðhagslega hagkvæmt
Þannig hafa skattkerfisbreytingarnar sem gerðar voru á gjaldtöku af bílum haft þau áhrif að skattar á nýja bíla hafa hækkað og sparneytnari bílar eru orðnir óhagkvæmari í rekstri. Að sama skapi eru eldri og eyðslufrekari bílar orðnir hagkvæmari. Óhófleg skattlagning á nýja bíla veldur því að færri kaupa nýja bíla, sem hægir á endurnýjun bílaflotans og gerir hann hættulegri. Jafnframt leggst skattbyrðin ójafnt á einstaklinga eftir því hvar þeir eru búsettir á landinu.
Tekjutap ríkissjóðs af afnámi vörugjalda yrði minna en einföld áætlun segir, þar sem viðskipti með nýja bíla myndu aukast og hluti tekjutapsins skilaði sér til baka í virðisaukaskatti. Á móti yrði allratapið minna, yngri og öruggari bílafloti og lægri slysakostnaður.
Leggja til afnám vörugjalda
Að ofangreindu virtu leggur Viðskiptaráð til afnám vörugjalda á bíla. Hvati fólks til að kaupa nýrri og öruggari bíla myndi aukast og neytendur gætu valið þann bíl sem hentar aðstæðum þeirra, í stað þess að hið opinbera hlutist til um neyslu með jafn verulegum hætti og nú er. Við skattlagningu á ökutækjum ætti að horfa til þess að lágmarka efnahagslega röskun hennar. Kílómetragjald er að því leyti hagkvæmari kostur en vörugjöld, þar sem allratap af þeirri skattlagningu er minna. Kílómetragjald stendur eftir sem gjald sem tengist raunverulegri notkun og tryggir að greitt sé fyrir notkun vegakerfisins segir í greiningu Viðskiptaráðs.










