Frá því í maí á þessu ári hafa 6 ferðamannastaðir bæst við þar sem rukkað er fyrir afnot bílastæða. Í maí voru þeir 54 talsins, nú eru þeir 60. Á langflestum staðanna er gjaldið 1.000 kr. fyrir fólksbíl en á sumum þeirra er það hærra. Til dæmis kostar 1.400 kr. að leggja bíl á hverasvæðinu við Námaskarð.
Fyrir tveimur árum var gjaldskylda á 37 bílastæðum við ferðamannastaði. FÍB hefur áður bent á að á fæstum þessara staða er ástæða til gjaldtökunnar vegna plássleysis og þjónusta við ferðamenn er lítil eða engin. Í fæstum tilfellum hafa landeigendur lagt nokkuð til uppbyggingar eða viðhalds ferðamannastaðanna, heldur fénýta sér áhuga ferðamanna á að skoða náttúruperlurnar.
Á síðustu 10 árum hefur Framkvæmdasjóður ferðamannastaða úthlutað 6,6 milljörðum króna af fjármunum skattgreiðenda til uppbyggingar ferðamannastaða. Skilyrði styrkveitinganna er að staðirnir séu opnir gjaldfrjálsri umferð almennings. Með öðrum orðum, ekki má innheimta aðgangseyri.
Á flestum ferðamannastöðum sem hafa fengið styrki úr framkvæmdasjóðnum er í raun rukkað fyrir aðgang í trássi við þessi skilyrði. Það er gert með ofteknum bílastæðagjöldum. Afkomutölur sýna að kostnaður við rekstur bílastæða og salerna er sums staðar innan við helmingur af tekjunum. Allt umfram það er því ekkert annað en gjald fyrir aðgang að viðkomandi ferðamannastað. Slíkt er ekki aðeins óheimilt samkvæmt reglum framkvæmdasjóðsins heldur stríðir gegn almannarétti um frjálsa för um landið.
Og nú ætlar ríkissjóður að feta í fótspor landeigenda og rukka beint fyrir aðgang að helstu ferðamannastöðunum. Gesturinn borgar því fyrst fyrir bílastæðið og síðan fyrir aðganginn að staðnum. Væntanlega þarf að breyta lögum um framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að gera ríkinu þetta kleift. En um leið væri verið að lögleiða þann aðgangseyri sem eigendur bílastæða eru í raun að taka af ferðafólki.







