Stjórnlaus hækkun rekstrarkostnaðar bílatrygginga

Lestími: < 1 mín

Rekstrarkostnaður lögboðinna ökutækjatrygginga var 24% hærri á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en á fyrsta ársfjórðungi 2025. Á sama tímabili var verðbólga 5,4%.

Bíleigendur borga þessa óskiljanlegu hækkun rekstrarkostnaðar. Engar skýringar hafa borist frá tryggingafélögunum né samtökum þeirra á því hvað býr að baki. Athygli vekur að á meðan rekstrarkostnaður hækkar svona mikið í þeim tryggingum sem allir bíleigendur eru skyldaðir til að borga, þá hækkar hann aðeins um 0,7% á sama tímabili í frjálsum ökutækjatryggingum, þ.e. kaskó. 

Þessar upplýsingar koma fram í gagnatöflum fjármálaeftirlits Seðlabankans. Í þeim töflum vekur athygli að þó að rekstrarkostnaður í skyldutryggingunum hafi hækkað um 24%, þá hafa iðgjöld þeirra á sama tíma hækkað um 3,7%. Í kaskótryggingum er þessu öfugt farið. Þar hækkuðu iðgjöld milli fyrstu ársfjórðunga 2025 og 2026 um 8,6% en rekstrarkostnaður um 0,7%.

Deila grein: